Innlent

Frábær árangur á Evrópumóti í kotru

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Íslenska landsliðið gerði frábæra hluti í Króatíu um helgina.
Íslenska landsliðið gerði frábæra hluti í Króatíu um helgina. mynd/einkasafn
„Þetta er alveg magnað og er stór sigur fyrir litla Ísland,“ segir Bjarni Freyr Kristjánsson, meðlimur í íslenska landsliðinu í Kotru og forseti Kotrusambands Íslands. Liðið braut blað í íslenskri kotrusögu með því að lenda í fimmta sæti á Evrópumóti landsliða í Dubrovnik í Króatíu um liðna helgi.

Til að toppa þennan frábæra árangur liðsins var Bjarni Freyr einnig kosinn í stjórn Evrópusambandsins í kotru. „Ég er alveg í skýjunum yfir þessu, það er mikill heiður að komast í þessa stjórn,“ bætir Bjarni Freyr við.

Kotra er borðspil sem hefur verið spilað hér á landi í áratugi. Um er að ræða einn elsta borðleik í heimi og gengur hann út á það að þú ert með menn á borði sem þú átt að koma í heimahöfn. „Það er auðvitað fullt af fólki sem spilar þetta heima hjá sér og þess háttar en við stofnuðum Kotrusamband Íslands árið 2009 og það eru um það bil hundrað manns sem eru á stigalista, sem hafa tekið þátt í mótum á einhverjum tímapunkti,“ útskýrir Bjarni Freyr.

Bjarni Freyr Kristjánsson
Í landsliðinu eru sex einstaklingar, auk Bjarna Freys, en þeir eru Róbert Lagerman, Gísli Hrafnkelsson, Fjalar Páll Mánason, Daníel Már Sigurðsson, og Stefán Freyr Guðmundsson. „Þar sem þetta er liðamót en ekki einstaklingsmót, þá er fyrirkomulagið þannig að það eru fjórir sem spila í einu og tveir eru varamenn. Það getur tekið rosalega á að spila, leikirnir geta farið allt upp í þrjá og hálfa klukkustund,“ segir Bjarni Freyr.

Liðið spilað 24 leiki og vann 11 af þeim. Íslenska liðið var hársbreidd frá því að komast í bronsleikinn og var með jafnmörg stig og Króatía sem endaði í fjórða sæti. „Við töpuðum á fjórða „tiebreak“. Það eru fjórir flokkar sem segja til um hvaða lið fer áfram þegar lið eru jöfn, til að mynda vorum við 0,5 stigum frá því að komast í bronsleikinn á móti Grikklandi.“

Evrópumótið í Króatíu fór fram í fyrsta sinn með formlegum hætti um liðna helgi. „Þetta er fyrsta svona opinbera Evrópumót liða. Þá var einnig verið að stofnsetja þetta Evrópusamband.“

Sem stendur eru fjórtán þjóðir sem eiga aðild að sambandinu en það er þó enn verið að bæta við aðildarþjóðum, enda leikurinn spilaður um allan heim. Danir urðu Evrópumeistarar, Austurríkismenn lentu í öðru sæti og Grikkir í því þriðja eftir maraþonviðureign við Króata.

Bjarni Freyr hvetur fólk til þess að prófa spilið. „Þessi hugarleikur hefur þetta allt: Rökvísi, útsjónarsemi og rómantík. Lifi kotran, lifi Ísland,“ segir Bjarni Freyr.

Hvað er kotra?

Kotra er borðspil sem er einnig þekkt undir nafninu Backgammon og hefur það verið spilað hér á landi í áratugi. Tveir leikmenn keppa um það að koma fimmtán mönnum sínum á borði í heimahöfn eftir teningakasti, sem ræður för mannanna. Sá leikmaður sem nær öllum sínum mönnum í heimahöfn vinnur. Leikurinn gengur út á það að sækja og verjast í einu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×