Fótbolti

Frábær afgreiðsla Pálma Rafns dugði ekki til | Myndband

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Heimasíða Lilleström
Pálmi Rafn Pálmason skoraði glæsilegt mark fyrir Lilleström í dramatísku tapi gegn Noregsmeisturum Molde í norska bikarnum í gærkvöldi.

Pálmi Rafn kom Lilleström á bragðið í fyrri hálfleik með frábærri afgreiðslu úr þröngu færi. Pálim Rafn og félagar komust aftur í 2-1 en gestirnir jöfnuðu með stórbrotnu skoti utan teigs.

Markvörður Molde reyndist hetja í vítaspyrnukeppninni. Mark Pálma, glæsimark Molde og fleiri tilþrif má sjá í myndbandinu hér að neðan frá TV2 í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×