Frá trú til skynsemi

Fréttablaðið Fastir pennar 09. febrúar 2012 06:00
Jón Ormur Halldórsson.
Jón Ormur Halldórsson.
Jón Ormur Halldórsson skrifar:
Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vissu og gátu en ríkið þvældist fyrir. Þetta mál málanna í stjórnmálum var raunar hvergi afgreitt utan Vesturlanda. Síst í Asíu þar sem menn hafa náð heimssögulegum árangri í efnahagsmálum á síðustu árum. Sá árangur hefur gefið nokkrum ríkjum kennivald sem mikinn hroka þarf til að hafna.


Lýðræði
Þessi ríki hafa þó lítið að kenna Vesturlöndum um mannréttindi eða lýðræði og oft minna en menn halda um fíngerðari hluti mannlífsins. Hagstjórn í þeim ríkjum sem best hafa staðið sig hefur hins vegar í veigamestu atriðum lítið með einræði eða lýðræði að gera. Flest eru þau líka að þróast í átt til aukins lýðræðis sem mun efla þau enn frekar.


Þrenn mistök
Singapúrbúinn og diplómatinn Mahbubani, einn af gleggri dálkahöfundum Asíu, skrifaði nýlega á þá leið að Vesturlönd hefðu lent í kreppu vegna þrennra mistaka. Ein voru að taka hugmyndafræðilega frekar en praktíska afstöðu til markaða. Önnur voru gleymska á þau sannindi að kapítalisminn lifir ekki nema flestir þjóðfélagshópar hafi hag af honum. Þau þriðju voru að lofa sköpunarmátt kapítalismans en gleyma því að öll sköpun byggir á eyðileggingu þess sem fyrir er.


Sjálfstæði ríkisvaldsins
Asískir menntamenn hafa lengi undrast þá hugmyndafræðilegu trú sem vestrænir menn hafa á mörkuðum. Þótt mörg lönd Asíu séu opin markaðskerfi er hvergi þar í álfu að finna þá einlægu trú á mörkuðum sem er ríkjandi í Bandaríkjunum og var ráðandi hérlendis og víðar í Evrópu um nokkurn tíma. Í Asíu snúast umræður um markaði oftast um praktískar leiðir til nota þá og um það hvernig efla megi styrk og sjálfstæði ríkisvaldsins svo það geti veitt mörkuðum virkt aðhald.


Gleymska
Menn vissu við lok stríðsins að kapítalisminn myndi ekki lifa af í Evrópu nema tvennt kæmi til. Annað, að menn gætu hamið verstu sveiflur kapítalismans og komið í veg fyrir kreppur sem leiddu til skelfinga hjá launafólki. Hitt, að til yrðu velferðarkerfi sem tryggðu almenna menntun, aðgengi allra að heilsugæslu og sæmilegan jöfnuð í lífskjörum. Þetta tókst og það svo vel að til urðu í Evrópu einhver upplýstustu, jöfnustu og heilbrigðustu samfélög í sögu heimsins. En svo gleymdist þetta aftur.


Skapandi eyðilegging
Menn vissu líka að heimsvæðingin myndi eyða störfum á Vesturlöndum og auka ójöfnuð. Þetta er af einföldum ástæðum. Heimsvæðingin snýst um að gera allan heiminn að einum vinnumarkaði og ná þannig sem mestri skilvirkni. Vestræn ríki með dýrt vinnuafl geta ekki keppt við ódýrara vinnuafl í risasamfélögum Asíu nema með því að hækka sífellt tæknistig og auka menntun vinnuaflsins. Ef ekki, þá fellur kaupmáttur og atvinnuleysi eykst. Með heimsvæðingunni vaxa hins vegar tækifæri þeirra sem mest kunna fyrir sér og ójöfnuður eykst. Þetta eiga menn að vita en ríki Vesturlanda hafa ekki brugðist rétt við.


Lömun ríkisvalds
Ástæðurnar fyrir fátæklegum viðbrögðum eru þrjár. Ríkisvald á Vesturlöndum hefur verið að veikjast af pólitískum ástæðum. Hugmyndafræðileg tíska hefur líka meinað mönnum að beita þeim björgum sem ríkin búa þó yfir. Ábyrgðarlaus skuldsetning ríkja á síðustu áratugum hefur að auki dregið stórlega úr getu þeirra til að bregðast við með aukinni fjárfestingu í menntakerfum, rannsóknum, stoðkerfum og atvinnusköpun.


Ríkisstjórnir í vanda
Svo kom kreppa og kröfur manna urðu meiri en ríkisstjórnir fá ráðið við. Þær hafa misst vald bæði til alþjóðlegra markaða og innlendra. Valdið hefur líka færst frá kjósendum til neytenda, sem er að vísu sami hópurinn en með ólíka sýn og hagsmuni þó. Menn hrópuðu fyrir skemmstu sem neytendur en nú hrópa þeir sem kjósendur. Kjósendur skiptast að auki meira en fyrr eftir ólíkum hagsmunum kynslóða, sem pólitíska kerfið ræður illa við. Þeir skuldsettu á miðjum aldri hafa allt aðra hagsmuni en þeir eldri sem vilja öruggan lífeyri og sem minnsta skatta.


Mörg módel
Kapítalisminn er ekki á útleið. Af honum eru líka til hin ólíkustu afbrigði. Sum bera þess merki að hagsmunir einstakra atvinnugreina hafa ráðið miklu í stjórnmálum. Víða í Evrópu var reynslan af afskiptum ríkisins af atvinnulífi lengi mjög slæm og markaðslausnir sýndust því heillandi. Afreglun átti að leiða menn frá klíkuskap, pólitískri spillingu, óskilvirkni og sérhagsmunum. Hún leiddi inn í annað öngstræti. Þau módel af kapítalismanum sem nú eru við lýði, ein fjögur eða fimm í Evrópu og önnur fjögur eða fimm í Asíu, bjóða fram ólíka kosti. Innan þeirra takast á hagsmunir, trú og skynsemi. Trúin er víða að veikjast.


Skynsemi
Málið snýst öðru fremur um að finna módel þar sem sértækir hagsmunir ráða sem minnstu. Hverjir sem þeir eru. Og þar sem skynsemi fær að ráða oftar en kreddur. Ríki hafa stærra hlutverk við uppbyggingu atvinnulífs en að forða verðbólgu með tískukenningum hvers tíma í peningastjórn. Hagkerfið er undirstaða alls þjóðlífsins og ekki fyrir fikt eða fúsk. Skynsemi er stundum snjallari en markaðir og alltaf betri en kreddur.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Frá trú til skynsemi