Skoðun

Frá orðum til athafna – Í okkar valdi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Það er hryllilegt að horfa á fréttir af blóðugum börnum á flótta og vanmáttartilfinningin og reiðin togast á innra með manni. Skyndilausnin er að loka augunum, „það er hvort eð er ekkert sem ég get gert“ eða hvað?

Á fyrstu dögum 71. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York í september funduðu leiðtogar heims til að ræða um vanda flóttamanna og farandfólks en samkvæmt upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna voru flóttamenn í heiminum 21,3 milljónir talsins árið 2015 og farandfólk 243,7 milljónir alls. Í lok fundar hétu leiðtogarnir fyrir hönd þjóða sinna að taka á móti fleiri flóttamönnum og setja meiri pening í málaflokkinn en niðurstaðan var þó ekki bindandi.

Fyrir ári samþykktu leiðtogarnir ný heimsmarkið um sjálfbæra þróun til þess að eyða fátækt, tryggja velmegun, mannréttindi og jafnrétti um allan heim með hliðsjón af umhverfi okkar. Í áætluninni sem er til 15 ára er sérstök áhersla lögð á aðgerðir til að bæta stöðu þeirra allra fátækustu. Í desember komu svo veraldarleiðtogar saman í París og samþykktu rammasamning um að halda hlýnun jarðar innan tveggja gráða á Celsíus á þessari öld og taka á afleiðingum loftslagsbreytinga.

Orð eru til alls fyrst og það er grundvallaratriði að þjóðir heims komi sér saman um hvernig takast skuli á við þær miklu áskoranir sem við jarðarbúar stöndum frammi fyrir allir sem einn. Við lifum í flóknum heimi en áskoranirnar hanga saman þar sem uppskerubrestur verður vegna öfga í veðri. Hungur og fólksflutningar er afleiðing uppskerubrests, áttök verða vegna skorts á gæðum og loks flýr fólk frá átakasvæðum til að halda lífi. En það er ekki nóg að álykta og komast að samkomulagi um markmið. Það þarf að grípa til aðgerða til þess að ná þeim. Og þá vandast málið því hagsmunir okkar jarðarbúa eiga það til að stangast á.

Og hvað getum við þá gert, ég og þú, hér og nú, til að binda enda á ófrið, fátækt og misrétti? Við getum byrjað á því að hætta að loka augunum, hlusta, vera gagnrýnin og virk í samfélaginu. Við getum unnið á okkar eigin fordómum, lagt á okkur að kynnast þeim sem eru okkur framandi og þrýst á stjórnvöld hér á Íslandi sem svo beita sínum þrýstingi hér heima og á alþjóðavettvangi um að fólk og samfélög sem eru aflögufær láti af græðgi því eins og Gandhi sagði þá fullnægir jörðin þörfum okkar allra en ekki græðgi allra. Við getum og eigum að hafa áhrif. Margt smátt gerir eitt stórt!

Pistillinn birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×