Golf

Fowler ætlar að reyna að setja pressu á McIlroy á morgun

Rickie Fowler lék vel í dag.
Rickie Fowler lék vel í dag. AP/Getty
Það þarf hálfgert kraftaverk til þess að einhver nái RoryMcIlroy á lokahringnum á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á Hoylake en eftir þrjá hringi er Norður-Írinn ungi á 16 höggum undir pari eftir að hafa leikið á 68 höggum í dag eða fjórum undir pari.

McIlroy hefur spilað stórkostlegt golf hingað til og á fyrstu þremur hringjunum hefur hann aðeins fengið fjóra skolla sem þykir afar gott á jafn erfiðum strandavelli og Royal Liverpool völlurinn er.

Hann hefur unnið tvo risatitla á ferlinum og gæti bætt þeim þriðja í safnið á morgun ef hann stenst pressuna en þrátt fyrir að eiga sex högg á næsta mann eru nokkrir sterkir kylfingar sem gætu með frábærum hring gert atlögu að honum.

Í öðru sæti er hinn geysivinsæli Rickie Fowler á tíu höggum undir pari en hann mun leika með McIlroy í lokahollinu á morgun. Þeir tveir eru ekki bara nágrannar og góðir félagar heldur hafa þeir oft barist við hvorn annan á golfvellinum.

McIlroy hefur endað í öðru sæti í báðum atvinnumótunum sem Fowler hefur sigrað í á ferlinum og á Wells Fargo meistaramótinu árið 2012 hafi sá bandaríski betur í bráðabana við McIlroy um sigurinn.

Fowler hefur enn trú á því að hann geti náð félaga sínum á morgun en hann var nokkuð bjartsýnn í viðtali við BBC eftir hringinn í dag. „Það eru 18. holur eftir og mótið er langt frá því að vera búið. Ef mér tekst að fá nokkra fugla snemma á hringnum á morgun get ég kannski sett pressu á Rory. Spennustigið á lokahringjum í risamótum er yfirleitt mikið og ég mun reyna að notfæra mér það.“

Lokahringurinn á Opna breska meistaramótinu verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 10:00 á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×