Fótbolti

FourFourTwo fann sautján þjálfara sem eru betri en Lars Lagerbäck

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lars Lagerbäck.
Lars Lagerbäck. Vísir/Getty
Fótboltatímaritið FourFourTwo hefur valið besta knattspyrnustjóra/þjálfara heimsins í fótboltanum og það kemur okkur Íslendingum kannski svolítið á óvart að sjá hver er númer átján í röðinni.

Blaðamaður FourFourTwo skrifar reyndar lofræðu um Lars Lagerbäck og segir frá ferli hans á afrekum. Það breytir þó ekki því að blaðið telur að sautján knattspyrnustjórar eða þjálfarar séu betri en hann þrátt fyrir einstök afrek Svíans með íslenska landsliðið á árinu 2016.

FourFourTwo segir Lars Lagerbäck vera einstakan meðal þeirra landsliðsþjálfara sem hafa náð góðum árangri vegna þess að hann var hvorki sjálfur atvinnumaður í fótbolta né hefur þjálfað félagslið.

Í umfjölluninni um Lagerbäck er sagt meðal annars frá þeim áhrifum sem hann varð frá Englendingunum Roy Hodgson og Bob Houghton sem komu til Svíþjóðar á áttunda áratugnum.  Það er hægt að lesa þetta hér.

FourFourTwo segir líka frá því að Lars Lagerbäck sé oft í samstarfi með öðrum þjálfara. Hann var lengi með Tommy Soderberg hjá sænska landsliðinu og svo störfuðu hann og Heimir Hallgrímsson saman hjá íslenska landsliðinu.

Þarna segir líka af því þegar Lagerbäck rak stórstjörnurnar Zlatan Ibrahimovic og Olof Mellberg heim úr landsliðsferð eftir að þeir höfðu leyft sér að skemmta sér fram á nótt í miðju landliðsverkefni í Liechtenstein.

Blaðamaður FourFourTwo segir Svía hafa ekki áttað sig á því hvað þeir höfðu fyrr en þeir misstu Lagerbäck til Íslands. Lagerbäck náði fínum árangri með sænska landsliðið en hrökklaðist svo úr starfinu eftir mikla gagnrýni. Hann var ekki í miklu uppáhaldi meðal sænsku blaðamannanna en sló í gegn frá fyrsta degi meðal þeirra íslensku.

Lagerbäck er hinsvegar orðin mikil hetja í heimalandinu sínu eftir afrek sín með íslenska landsliðið sem hefur hækkað sig um meira en 100 sæti á FIFA-listanum undir hans stjórn.  Íslendingar elska hann og Svíar elska hann en það lítur samt út fyrir að þessi 68 ára kappi ætli að setjast í helgan stein.

Lars Lagerbäck er bara í 18. sæti á þessum lista FourFourTwo og því verður afar fróðlegt að sjá hvaða sautján aðili blaðið telur að séu betri en hann.

Lagerbäck og Heimir komu íslenska landsliðinu alla leið í átta liða úrslit á EM í Frakklandi á fyrsta stórmóti íslenska karlalandsliðsins frá upphafi.  Það afrek með lið frá rúmlega 330 þúsund manna þjóð ætti að lágmarki að skila karlinum inn á topp tíu.


Tengdar fréttir

Lars Lagerbäck: Alvöru prófraun fyrir íslenska knattspyrnu

Lars Lagerbäck skilur nú við íslenska karlalandsliðið eftir mesta velmegunarskeið í sögu þess. Hann gerir upp árin sín hjá KSÍ og segir við þessi tímamót að nú þurfi að nýta þann mikla meðbyr sem nú nýtur við til þess að efla

Ótrúleg fjögur ár á FIFA-lista

Aðeins 21 knattspyrnulandslið er fyrir ofan Ísland á nýjasta styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem kom út í gær. Ísland er í 22. sæti og hefur aldrei verið ofar. 109 þjóðir hafa þurft að gefa eftir sæti sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×