Innlent

Fótboltamenn ágæt tilraunadýr fyrir hross

Kristján Már Unnarsson skrifar
Maðurinn notar gjarnan dýr í tilraunaskyni þegar prófa þarf eitthvað nýtt. Það er hins vegar fáheyrt að menn séu notaðir í tilraunum í þágu dýra, en dæmi um slíkt fann Stöð 2 í Flóanum suður af Selfossi á dögunum.

Sveitin telst í hópi öflugustu landbúnaðarhéraða landsins. En Flóinn leynir á sér og þar hafa til að mynda verið að vaxa úr grasi athyglisverð nýsköpunarfyrirtæki á sviði málmiðnaðar, þeirra á meðal Formax við Gegnishóla.

Þar eru smíðuð tæki fyrir hrossarækt, eins og vatnsbretti, sem notað er til þjálfunar, - ekki bara íslenskra gæðinga , - heldur erlendra veðhlaupahesta. Eigendur fyrirtækisins, þeir Bjarni Sigurðsson og Helgi Friðrik Halldórsson, nota hins vegar óvenjuleg tilraunadýr til að prófa tækið.

„Þá notar maður mennskar tilraunamýs,“ segir Bjarni, sem er framkvæmdastjóri Formax, um leið og hann sýnir okkur myndband af tveim piltum reyna vatnsbretti hrossanna.

„Þetta eru strákarnir mínir hérna. Þeir voru bara fengnir í þetta og látnir puða. Það er mjög auðvelt að spyrja þá hvernig þeim finnst. Það er erfiðara að spyrja hestana.“

Kunnur knattspyrnumaður hleypur á vatnsbrettinu, Atli Heimisson, sem spilar fótbolta með liði í Noregi. Við spyrjum hvort næsta skref sé þá ekki að selja KSÍ svona tæki eða jafnvel líkamsræktarstöðvum.

Sjá mátti íslenskan stóðhest í þjálfun í svona tæki í reiðhöll í Húnaþingi vestra í þættinum „Um land allt" í byrjun mánaðarins. Aðalmarkaðurinn er þó erlendis.

„Við erum farnir að selja þetta vítt og breitt um heiminn,“ segir meðeigandinn Helgi Friðrik. Í þættinum „Um land allt“ á  Stöð 2 í kvöld var fjallað nánar um starfsemina.


Tengdar fréttir

Hafa tífaldað notkun notaðra bílavarahluta

Umbreyting bílapartasölu yfir í umhverfisvæna endurvinnslu varð til þess að endurnýtingarhlutfall bílavarahluta tífaldaðist hérlendis á skömmum tíma.

Torfbæirnir íslensku eru merkur byggingararfur

Torfbærinn er eitt merkasta framlag Íslendinga til heimsmenningarinnar, að mati Hannesar Lárussonar myndlistarmanns, sem opnað hefur menningarsetur helgað torfbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×