Erlent

Forystusauðir funda á Davos-ráðstefnunni

gUÐSTEINN BJARNASON skrifar
Mikil öryggisgæsla er að venju í svissneska fjallaþorpinu Davos þegar helstu valdamenn heims safnast þar saman. Þarna eru lögreglumenn á þaki ráðstefnuhallarinnar að fara yfir öryggisatriði.
Mikil öryggisgæsla er að venju í svissneska fjallaþorpinu Davos þegar helstu valdamenn heims safnast þar saman. Þarna eru lögreglumenn á þaki ráðstefnuhallarinnar að fara yfir öryggisatriði. vísir/epa
Meðal gesta á efnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss þetta árið er Xi Jinping, forseti Kína. Þar hittast á hverju ári margir helstu forystusauðir viðskipta og stjórnmála í heiminum.

Enginn kínverskur forseti hefur áður mætt þar til leiks og þess vegna hefur athygli fjölmiðla beinst mjög að honum, ekki síst reyndar í von um að hann gefi kannski einhverjar vísbendingar um það hvernig hann muni takast á við nýjan forseta Bandaríkjanna.

Xi Jinping, forseti Kína.vísir/afp
Donald Trump tekur við á föstudaginn og hefur ekkert hikað við að ögra Kínverjum, þótt fyrri Bandaríkjaforsetar og aðrir þjóðarleiðtogar hafi flestir hverjir forðast slíkt eins og heitan eldinn.

Xi flytur opnunarávarp ráðstefnunnar í dag og mun að sögn kínverskra fjölmiðla leggja áherslu á mikilvægi alþjóðavæðingar viðskiptalífsins, sem er þveröfugt við þá einangrunarhyggju sem Trump hefur boðað.

Trump verður hins vegar fjarri góðu gamni og Vladimír Pútín Rússlandsforseti mætir ekki, en Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, kemur til Davos síðar í dag eftir að hafa flutt ræðu heima fyrir um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.

Í tengslum við ráðstefnuna eru jafnan gefnar út miklar skýrslur um ástand efnahagsmála í heiminum. Þar á meðal senda alþjóðlegu góðgerðarsamtökin Oxfam frá sér samantekt um ójöfnuð, sem þetta árið leiðir í ljós að átta ríkustu menn heims eiga jafn mikið og fátækari helmingur mannkyns.

Oxfam bendir á að einungis um fjórðungur þeirra 1.800 manna sem talist geta milljarðamæringar í dollurum talið hafi eignast auð sinn með dugnaði og heiðarlegri vinnu. Þriðjungur hafi erft féð en um 43 prósent þeirra hafi komist yfir peninga vegna aðstöðu sinnar.

Ráðstefnunni í Davos lýkur á föstudaginn.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×