Innlent

Forvarnarsjóður Kópavogs: Fjögur verkefni fengu styrk

Atli Ísleifsson skrifar
Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega viðhöfn í leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi.
Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega viðhöfn í leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi. Mynd/Kópavogsbær
Fjögur verkefni fengu úthlutað samtals tæpum tveimur milljónum úr forvarnarsjóði Kópavogs í dag. Styrkirnir voru afhentir við hátíðlega viðhöfn í leikskólanum Sólhvörfum í Kópavogi.

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að leikskólar Kópavogs hafi fengið 900 þúsund króna styrk fyrir verkefnið Vinátta - Forvarnarnámskeið fyrir leikskólabörn.

„Blátt áfram fékk 500.000 krónur fyrir verkefnið Bella net, þjálfun leiðbeinanda í félagsmiðstöðvum fyrir vinnu með sjálfsstyrkingarhópa stúlkna. Salaskóli hlaut 200.000 króna styrk fyrir verkefnið Ábyrgur á netinu – Fræðsla fyrir 5.-10. bekk um ábyrga nethegðun. Loks hlaut SAMAN hópurinn 100.000 króna styrk til forvarnarstarfs sem hefur það að markmiði að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu.

Forvarnarsjóður Kópavogs var stofnaður í byrjun árs 2014 og er úthlutað úr honum einu sinni á ári samkvæmt tillögum forvarnar- og frístundanefndar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að öflugu forvarna- og frístundastarfi í Kópavogi með það að markmiði að veita einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum styrki til verkefna sem hafa það að leiðarljósi að efla forvarnar- og frístundastarf Kópavogsbúa,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×