Innlent

Forvarnardagurinn áttunda árið í röð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá Ólaf Ragnar á Forvarnardeginum árið 2012.
Hér má sjá Ólaf Ragnar á Forvarnardeginum árið 2012.
Forvarnardagurinn fer fram á morgun en hann er haldinn í grunn- og framhaldsskólum landsins.

Af því tilefni heimsækir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands einn grunnskóla og einn framhaldsskóla.

Forsetinn verður í Vogaskóla í Reykjavík klukkan níu um morguninn og klukkan hálf ellefu heldur hann yfir í Menntaskólann við Sund. Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, heimsækir Laugalækjarskóla klukkan ellefu.

Bæði Ólafur og Dagur ætla sér að ræða við nemendur og kynnast sjónarmiðum þeirra um forvarnir og ávinninginn af því að seinka notkun áfengis og hverskyns vímuefna sem lengst.

Nýlegar rannsóknir á íþróttastarfi ungmenna benda til að þær hafi þá aðeins forvarnargildi ef þær eru stundaðar með formlegum og skipulegum hætti.

Rannsóknir sýna líka að Íslendingar hafa náð frábærum árangri í að draga úr notkun tóbaks og áfengis í grunnskólum undanfarinn áratug og er mikilvægt að halda þeim góða árangri.

Auk þess er mikilvægt að efla það góða forvarnastarf sem fram fer víða í framhaldsskólum.

Sérstakur forvarnardagur af þessu tagi hefur nú verið haldinn á hverju hausti undanfarin átta ár að frumkvæði forseta Íslands.

Að deginum standa Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Félag íslenskra framhaldsskóla og Rannsóknir og greining.

Dagurinn er skipulagður með stuðningi lyfjafyrirtækisins Actavis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×