Forsvarsmenn ISNIC tiltóku ýmsar ástæður fyrir að loka á íslamska ríkið Kjartan Atli Kjartansson skrifar 20. október 2014 13:06 Frá fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun. Vísir/GVA
Forvarsmenn fyrirtækisins ISNIC tiltóku ýmsar ástæður fyrir því að lokað var á lén samtakanna íslamska ríkið á fundi umverfis- og samgöngunefndar Alþingis sem fram fór í morgun. Fjórir forsvarmenn frá fyrirtækinu voru gestir nefndarinnar. Auk þeirra voru þar aðrir gestir, til að mynda lögfræðingur Advania. Fjallað var um kaup samtakanna sem kölluð eru íslamska ríkið á íslenskum lénum. Á fundinum var farið yfir málið frá hinum ýmsu hliðum og kom fram að þingmenn litu á fundinn sem lið í því að fá betri yfirsýn yfir það.Virkuðu næstum því ósammála Forsvarsmenn mættu á fundinn til þess að svara fyrir lokunina og tiltóku ýmsar ástæður fyrir henni. Raunar var það svo að Ingimundur Sigurpálsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, og Steindór Dan Jensen, lögfræðingur fyrirtækisins, virkuðu nánast ósammála þegar þeir útskýrðu hvað lá að baki ákvörðuninni um að loka á lénin khilafah.is og Kilafah.is, sem aðilar á vegum íslamska ríkisins, eða Islamic State (IS) eins og það er kallað á ensku, höfðu keypt aðgang að. Ingimundur stjórnarformaður útskýrði ákvörðunina um að loka lénunum tveimur út frá þeim forsendum að verið væri að verja landslénið .is. Þeir aðilar sem keyptu umrædd lén vísuðu til þess að .is stæði fyrir skammstöfun íslamska ríkisins á ensku. Hann sagði ákvörðunina hafa vafist mjög fyrir forsvarsmönnum fyrirtækisins, því hjá ISNIC sé unnið eftir þeirri megin reglu að taka ekki afstöðu útfrá efni. „Þegar við vorum búin að kynna okkur alla þræði þessa máls sem við sáum yfir á þessum skamma tíma varð ákvörðunin ekki eins erfið og ætla mætti. Við töldum að lénakaupin væru að ógna léninu sem var verið að kaupa,“ sagði Ingimundur á fundinum og vísaði þar til þess að forsvarsmenn ISNIC hafi metið það sem svo að ef forsvarmenn íslamska ríkisins gætu vísað í .is sem lén samtakanna gæti það gjaldfellt virði lénsins í heild. „Sú ástæða réð ákvörðuninni.“Brot á landslögum Steindór Dan Jensen, lögfræðingur ISNIC, vísaði aftur á móti í landslög þegar hann útskýrði ákvörðunina að loka lénunum tveimur. „Við réttlættum ákvörðunina með vísun í reglur fyrirtækisins,“ sagði hann. Steindór vísaði í níundu reglu fyrirtækisins um skráningu léna. Þar segir: „Rétthafi ber ábyrgð á að notkun lénsins sé í samræmi við gildandi lög og reglur á hverjum tíma.“ „Við réttlættum lokunina með vísun í reglur og viðskiptaskilmála. Þessi ákveðni málsliður vísar almennt í íslensk lög.“Helmingur starfsmanna á móti ákvörðuninni Auk Ingimundar og Steindórs voru þeir Jens Pétur Jensen framkvæmdastjóri og Maríus Jensen netstjóri gestir fyrir hönd ISNIC á fundinum í morgun. Jens sagði það fyrst og fremst hafa verið viðskiptalega og efnahagslega hagsmuni fyrirtækisins sem réðu því að lokað var á íslamska ríkið. Hann sagði efni síðunnar ekki beinlínis hafa haft áhrif. Hann sagði þó forsvarsmenn fyrirtækisins einnig geta fundið ákvörðuninni stoð í reglum þeirra. Jens sagði ákvörðunina vera foræmalausa; þetta væri fyrsta lénið sem lokað væri á. Hann sagði að um helmingurinn af starfsfólki ISNIC hefði verið mótfallinn ákvörðuninni sem tekin var. Hann segir að hitafundur hafi verið haldinn með starfsmönnum fyrirtækisins á föstudaginn þar sem málið var rætt.
Tengdar fréttir Óttuðust að IS myndi sækja í .is Jens Pétur Jensen frá ISNIC og Aðalheiður Ámundadóttir frá IMMI ræddu um íslenska heimasíðu Íslamska ríkisins í Bítinu í morgun. 13. október 2014 11:00 ISIS uses Icelandic URL - "Something that can't be prevented" The website for the Islamic terrorist organization ISIS is registered in Iceland. The director of ISNIC, the company that handles all Icelandic website registrations, says that it was only a matter of time until ISIS would get a website with a .is ending. 11. október 2014 13:55 Segir lög gegn hatursáróðri útiloka upplýsingar Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata segir að ekki hafi verið lokað fyrir lénið khilafah.is á réttum forsendum. 13. október 2014 14:45 Vefsíða IS til skoðunar hjá stjórnvöldum Innanríkisráðuneytið hefur nú til skoðunar vefsíðu öfgasamtakanna Íslamska ríkið, khilafah.is, sem hýst er hér á landi. 11. október 2014 17:58 ISNIC lokar vef ISIS ISNIC hefur ákveðið að loka lénum sem notuð voru fyrir vefsíðu yfirlýstra hryðjuverkasamtaka en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 12. október 2014 19:47 ISIS með skráð lén á Íslandi: "Það er í sjálfu sér ekki hægt að koma í veg fyrir þetta“ Lén vefsíðu hryðjuverkasamtaka Íslamska ríkisins, ISIS, er skráð á Íslandi. Framkvæmdastjóri ISNIC - Internet á Íslandi segir það aðeins hafa verið tímaspursmál þar til að samtökin myndu útvega sér lén sem endar á .is. 11. október 2014 13:12 Síðu IS lokað af Advania Vefhýsirinn Advania hefur lokað fyrir vefsíðuna khilafah.is, fréttasíðu öfgasamtakanna Íslamskt ríki, sem skráð var á Íslandi. 11. október 2014 19:16 „Ekkert tengt þessum hryðjuverkasamtökum“ Eigandi isis.is segist ekki hafa fengið fyrirspurnir frá samtökunum Íslamska ríkið. 14. október 2014 10:31 Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Fleiri fréttir Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Sjá meira
Óttuðust að IS myndi sækja í .is Jens Pétur Jensen frá ISNIC og Aðalheiður Ámundadóttir frá IMMI ræddu um íslenska heimasíðu Íslamska ríkisins í Bítinu í morgun. 13. október 2014 11:00
ISIS uses Icelandic URL - "Something that can't be prevented" The website for the Islamic terrorist organization ISIS is registered in Iceland. The director of ISNIC, the company that handles all Icelandic website registrations, says that it was only a matter of time until ISIS would get a website with a .is ending. 11. október 2014 13:55
Segir lög gegn hatursáróðri útiloka upplýsingar Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata segir að ekki hafi verið lokað fyrir lénið khilafah.is á réttum forsendum. 13. október 2014 14:45
Vefsíða IS til skoðunar hjá stjórnvöldum Innanríkisráðuneytið hefur nú til skoðunar vefsíðu öfgasamtakanna Íslamska ríkið, khilafah.is, sem hýst er hér á landi. 11. október 2014 17:58
ISNIC lokar vef ISIS ISNIC hefur ákveðið að loka lénum sem notuð voru fyrir vefsíðu yfirlýstra hryðjuverkasamtaka en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 12. október 2014 19:47
ISIS með skráð lén á Íslandi: "Það er í sjálfu sér ekki hægt að koma í veg fyrir þetta“ Lén vefsíðu hryðjuverkasamtaka Íslamska ríkisins, ISIS, er skráð á Íslandi. Framkvæmdastjóri ISNIC - Internet á Íslandi segir það aðeins hafa verið tímaspursmál þar til að samtökin myndu útvega sér lén sem endar á .is. 11. október 2014 13:12
Síðu IS lokað af Advania Vefhýsirinn Advania hefur lokað fyrir vefsíðuna khilafah.is, fréttasíðu öfgasamtakanna Íslamskt ríki, sem skráð var á Íslandi. 11. október 2014 19:16
„Ekkert tengt þessum hryðjuverkasamtökum“ Eigandi isis.is segist ekki hafa fengið fyrirspurnir frá samtökunum Íslamska ríkið. 14. október 2014 10:31