Viðskipti erlent

Forstjóri Shell segir andstæðinga olíuvinnslu barnalega

ingvar haraldsson skrifar
Ben van Beurden, forstjóri Shell, segir andstæðinga vinnslu jarðefnaeldsneytis með barnalegar og óraunhæfar hugmyndir um hvernig takast megi á við hlýnun jarðar.
Ben van Beurden, forstjóri Shell, segir andstæðinga vinnslu jarðefnaeldsneytis með barnalegar og óraunhæfar hugmyndir um hvernig takast megi á við hlýnun jarðar.
Ben van Beurden, forstjóri Shell segir andstæðinga vinnslu jarðefnaeldsneytis með barnalegar og óraunhæfar hugmyndir um hvernig takast megi á við hlýnun jarðar. The Guardian greinir frá.

Ben van Beurden hvatti kollega sína í orkugeiranum til að láta meira í sér heyra varðandi framtíð orkunotkunar í heiminum áður en loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna færi fram í París síðar á þessu ári. Hann viðurkenndi þó að olíuvinnslufyrirtæki ættu við ákveðin ímyndarvanda að stríða þar sem sumir talsmenn olíuvinnslu hefðu ekki viljað viðurkenna að hlýnun jarðar ætti sér stað.

Forstjórinn kallaði eftir meira jafnvægi í umræðuna. Það væri ekki hægt að hætta að nota jarðefnaeldsneyti og notast einungis við endurnýtanlega orkugjafa, sú heimssýn væri barnaleg. „Já, hlýnun jarðar er raunveruleg og endurnýtanlegir orkugjafar eru nauðsynlegur hluti af orkunotkun. En nei, að hætta alfarið að nota jarðefnaeldsneyti er ekki raunhæft, sagði Ben van Beurden.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×