Viðskipti innlent

Forstjóri Össurar: Ekki að selja eftir örfáar mínútur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segist ekki geta notað íslenskar krónur.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segist ekki geta notað íslenskar krónur. VÍSIR/Valgarður Gíslason
Líkt og fram kom á Vísi í gær hagnaðist Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf. verulega er hann seldi hlutabréf í fyrirtækinu fyrir 464,5 milljónir króna í dönsku kauphöllinni. Þetta gerði hann örfáum mínútum eftir að hafa nýtt sér kaupréttarsamning sinn er gerði honum kleyft að kaupa 1,250,000 hluti í Össuri á genginu 8,55 danskar krónur. Í gær, við sölu Jóns, stóð gengi Össurar í 23,5 dönskum krónum. Söluhagnaðurinn nam því um 368 milljónum.

Samkvæmt samtali við fjölmiðlafulltrúa Össurar gerði Jón Sigurðsson kaupréttarsamninginn í apríl 2012 en þá var gengi Össurar á bilinu 8,35-8,75. Þann 24. apríl sl. hafi svo kaupréttarsamningurinn opnast og þá hafi Jón haft eitt ár til þess að nýta sér kauprétt sinn.

„Það var opið, ég gat selt“ sagði Jón aðspurður að því afhverju nákvæmlega þessi tímapuktur hafi orðið fyrir valinu. Þegar hann var spurður af hverju þessi viðskipti voru gerð í dönsku kauphöllinni, frekar en þeirri íslensku, en Össur er skráð í báðar kauphallir svaraði Jón því að hann gæti ekki notað íslenskar krónur.

„Ég bý erlendis og ef ég fæ íslenskar krónur get ég ekki notað þær.“

Honum finnst villandi að tala um að hann hafi keypt og selt hlutabréf í Össuri með aðeins örfáa mínútna millibili.

„Svona eru kaupréttarsamningar. Árið 2012 er gert samkomulag um að ég geti keypt á genginu 8,55. Ég er ekki að selja eftir örfáar mínútur. Ég er að selja eftir tæplega 4 ár.“

Söluhagnaður Jóns er talsverður en hann telur það vera eðlilegt enda hafi Össuri gengið vel.

„Ef hlutabréfin hækka þá hækkar minn ágóði. Hlutabréfin hafa hækkað svona mikið á undanförnum árum.“

Frá því að kaupréttarsamningarnir voru gerðir við Jón hefur gengi Össurar hækkað úr 8,55 í 23,5 í dönsku kauphöllinni en Össur hagnaðist vel á síðasta ári. Hagnaður fyrirtækisins árið 2014 jókst um 45% milli ára. Hagnaðurinn nam 59 milljónum Bandaríkjadala, sem samsvarar 7 milljörðum íslenskra króna.


Tengdar fréttir

Sala jókst um fimm prósent hjá Össuri

"Niðurstöður ársfjórðungsins eru í takt við okkar væntingar. Þrátt fyrir óhagstæð gengisáhrif er rekstrarárangurinn og afkoman góð,‟ segir Jón Sigurðsson.

Hagnaður Össurar jókst um tæpan helming

Hagnaður Össurar á síðasta ári jókst um 45% milli ára. Hagnaðurinn nam 59 milljónum Bandaríkjadala, sem samsvarar 7 milljörðum íslenskra króna, eða 12% af sölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×