Viðskipti innlent

Forstjóri MS fékk 37 milljónir við starfslok og áfram tap á rekstrinum

Ingvar Haraldsson skrifar
Einar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri MS, fékk 37,3 milljónir í starfslokagreiðslu.
Einar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri MS, fékk 37,3 milljónir í starfslokagreiðslu.
Egill Sigurðsson, stjórnarformaður MS, býst við að tap verði á rekstri MS annað árið í röð í kjölfar nýrra ákvarðana verðlagsnefndar búvara. Nefndin tilkynnti fyrir síðustu mánaðamót að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækki um 2,5 prósent.

„Á meðan erum við að horfa upp á launahækkanir í fyrirtækinu að meðaltali um tuttugu prósent vegna nýrra kjarasamninga,“ segir Egill. „Þetta verður þungt ár hjá okkur, það er alveg fyrirséð.“

Nefndin ákvarðar bæði það verð sem MS þarf að kaupa og selja mjólk á. „Þarna á milli er mjög þröngt svigrúm,“ segir Egill.

Egill Sigurðsson, stjórnarformaður MS
Nefndin hækkaði einnig afurðastöðvaverð til bænda um 1,77 krónur á mjólkurlítrann í 86,16 krónur og vinnslu- og dreifingarkostnað á mjólkurlítrann um 1,81 krónu. Sumarið 2015 hækkaði verðlagsnefndin heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum um 3,58 prósent að undanskildu smjöri sem hækkaði um 11,6 prósent.

Hækkunin var sú fyrsta frá október 2013. Á móti hækkaði afurðastöðvaverð til bænda um 1,47 krónur á mjólkurlítrann. Auk þess var vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur hækkaður um 4,27 kr. Samanlagt hefur heildsöluverð mjólkur því hækkað um 9,3 krónur síðustu tvö ár.

Í ársreikningi MS fyrir árið 2015 sem skilað var til fyrirtækjaskrár á föstudaginn kemur fram að fyrirtækið hafi þurft að leggja fram 112,7 milljónir króna í tryggingar vegna málaferla um einkaleyfi á skyrnafninu í Finnlandi.

Egill segir MS hafa fengið lögbann á sölu fyrirtækjanna Arla og Valio á skyri í Finnlandi en niðurstaða málaferlanna liggi ekki fyrir. Í ársreikningnum kemur fram að eigendur MS lögðu félaginu til 600 milljónir í aukið hlutafé á síðasta ári vegna fyrirsjáanlegs taps að sögn Egils.

Þá kemur jafnframt fram að greiðslur til stjórnenda hafi aukist um 37 milljónir króna, í 141 milljón króna. Hækkunin er að sögn Egils tilkomin vegna starfslokagreiðslu til Einars Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins sem lét af stöfum um mitt ár 2015. Greiðslan nam árslaunum Einars auk orlofs og var í samræmi við starfslokasamning að sögn Egils. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. júlí






Fleiri fréttir

Sjá meira


×