Innlent

Forstjóri LSH sammála gagnrýni landlæknis

Svavar Hávarðsson skrifar
Páll Matthíasson segir að ýmislegt í athugasemdum landlæknis hafi með Landspítala að gera, eðli máls samkvæmt, enda spítalinn stærsta stofnunin í heilbrigðiskerfinu.
Páll Matthíasson segir að ýmislegt í athugasemdum landlæknis hafi með Landspítala að gera, eðli máls samkvæmt, enda spítalinn stærsta stofnunin í heilbrigðiskerfinu.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, tekur undir gagnrýni Birgis Jakobssonar landlæknis á þróun heilbrigðisþjónustu á Íslandi – sérstaklega hvað varðar hlutastörf sérfræðilækna og skort á göngudeildarstarfsemi.

Þetta kemur fram í vikulegum forstjórapistli Páls sem birtur er á heimasíðu Landspítalans. Eins og kunnugt er birti landlæknir álit sitt og ábendingar á vef embættisins en var að stofni til efni bréfs til Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra. Landlæknir sagði þar að í raun hefði þróunin í heilbrigðiskerfinu verið á rangri braut um langa hríð.

Páll segir að ýmislegt í athugasemdum landlæknis hafi með Landspítala að gera, eðli máls samkvæmt, enda spítalinn stærsta stofnunin í heilbrigðiskerfinu.



Birgir Jakobsson, landlæknir


„Það eru einkum hlutastörf sérfræðilækna og skortur á göngudeildarstarfsemi sem landlæknir gerir athugasemdir við. Undir hvort tveggja get ég tekið enda höfum við lagt áherslu á að sem flestir helgi sig störfum á Landspítala og raunar greitt sérstaklega fyrir það. Vissulega eru undantekningar á þessari almennu reglu, til dæmis í mjög sérhæfðum sérgreinum læknisfræðinnar, en það eru einmitt undantekningar,“ skrifar Páll.



Kristján Þór Júlíusson
Hann segir jafnframt að áhrif af umfangsmikilli sérfræðiþjónustu lækna utan spítala endurspeglist að hluta í takmarkaðri göngudeildarstarfsemi á Landspítala. Fjöldi sjúklinga með fjölkerfa vandamál og króníska sjúkdóma aukist stöðugt og sú verði þróunin næstu árin.

„Þörfin fyrir teymisvinnu og samvinnu margra heilbrigðisstétta mun því aukast og þessari þjónustu verður best sinnt á göngudeildum sjúkrahúsa en ekki af einyrkjum í takmörkuðum rekstri,“ skrifar Páll og upplýsir að heilbrigðisráðherra hafi boðað hann og landlækni á fund fljótlega vegna gagnrýninnar en Kristján Þór hefur að hluta tekið undir sjónarmið landlæknis.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 23.maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×