Erlent

Forskot Clinton á Sanders nærri hverfur í nýrri skoðanakönnun

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Bernie Sanders saxar nú hratt á forskot Hillary Clinton.
Bernie Sanders saxar nú hratt á forskot Hillary Clinton. Nordicphotos/AFP
Forskot Hillary Clinton á Bernie Sanders í baráttunni um að verða forsetaefni Demókrataflokks Bandaríkjanna er nærri horfið ef marka má nýja skoðanakönnun IBD/TIPP sem birt var í gær.

Samkvæmt könnuninni nýtur Clint­on nú stuðnings 43 prósenta líklegra kjósenda en Sanders 39 prósenta. Þetta er töluverð breyting frá síðustu könnun sem kom út í desember. Þá mældist Clinton með 51 prósent en Sanders 33. Kannanir IBD/TIPP hafa reynst nokkuð áreiðanlegar og voru áreiðanlegastar allra í kosningabaráttunni árið 2012.

Nú munar bara fjórum prósentustigum á Clinton og Sanders. Aldrei hefur verið jafn mjótt á munum milli þeirra. Forskot Clinton hefur verið 15 til 30 prósent frá því í haust.

Tæpar þrjár vikur eru í að fyrstu ríkin kjósi í forkosningum, Iowa og New Hampshire. Einnig er mjótt á munum í þeim ríkjum, Sanders hefur fjögurra prósentustiga forskot í því síðarnefnda og Clinton þriggja í því fyrrnefnda. 


Tengdar fréttir

Allt í járnum á milli Sanders og Clinton

Mjótt er á munum á milli tveggja vinsælustu forsetaefna demókrata í Bandaríkjunum. Fyrstu ríkin kjósa í forkosningum eftir þrjár vikur. Niðurstöður kosninga í ríkjunum tveim hafa mikil áhrif á framgang mála. Hillary Clinton varar við




Fleiri fréttir

Sjá meira


×