Innlent

Forsetinn vitnar í Bubba og Bjartmar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú.
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú. vísir/ernir
Guðni Th. Jó­hannes­son, forseti Íslands, vitnaði í söngvaskáldin Bubba Morthens og Bjartmar Guðlaugsson í ávarpi við setningu Sjávarútvegsráðstefnunnar í gær.

Forsetinn sagði tuttugustu öldina hafa verið sjávarútvegsöld í Íslandssögunni. „En hvað með þá tuttugustu og fyrstu? Hlutfall sjávar­afla í útflutningstekjum okkar hefur minnkað til muna. Stóriðja stækkaði þjóðarkökuna. Ferðamennina með gjaldeyri sinn má meta til ótalmargra þorsk­ígildis­tonna,“ sagði Guðni og benti á að á höfuðborgarsvæðinu sæki nú fáir unglingar sumarvinnu í fiski.

„Og fátítt að þeir svari á fullorðinsárum kallinu góðkunna sem sungið var inn á hljómplötu árið 1982: Háseta vantar á bát, háseta vantar á línu og net,“ vitnaði forsetinn í texta Bjartmars Guðlaugssonar sem hann sagði hafa farið á sína fyrstu vertíð fimmtán ára gamall.

„Þúsund þorskar á færibandinu þokast nær,“ vísaði Guðni síðan í Bubba Morthens frá upphafi níunda áratugarins. „En allt er í heiminum hverfult. Þau eru að hverfa eða að minnsta kosti snar­minnka, þessi áhrif útvegsins á þjóðarsálina, sköpunina, mannfólkið. Óskalög sjómanna eru löngu horfin af öldum ljósvakans, ný lög um sjómennsku og fiskvinnslu heyrast sjaldan. Bubbi, Bjartmar og aðrir af þeirra kynslóð áttu kannski lokaorðin, að minnsta kosti í bili.“

Bjartmar, sem kveðst hafa farið á sína síðustu vertíð 1984, segir að það sem hafi glatt hann hvað mest í þróuninni sé að sjómenn séu í dag öruggir á sínum vinnustað.

Bjartmar Guðlaugsson.
„Þeir eru ekki að ferðast í jólasiglingar á einhverjum 70 tonna bátum og sjóslysum hefur fækkað – það voru slysin sem kvöldu mig mest í æsku,“ segir Bjartmar sem er ánægður með ræðu forsetans.

„Ég er stoltur af Guðna og ef hann minnist á mig er ég bara enn þá stoltari af honum. Og ég veit að hann skilur sjómannasögur mörgum öðrum betur,“ segir Bjartmar.

Forsetinn sagði í ávarpinu að ef rétt væri haldið á málum væri framtíðin björt í íslenskum sjávarútvegi. „Um fyrirsjáanlega framtíð verða fiskveiðar og vinnsla einn okkar mikilvægustu atvinnuvega,“ sagði Guðni og benti á að menntun væri frumskilyrði framfara. „Þótt börnin hér á höfuðborgarsvæðinu og kannski víðar um landið standi ekki lengur við færibandið og rói aldrei á línu og net er aldrei að vita nema þau leggist nú samt á árarnar.“

Ávarp forsetans má lesa á forseti.is.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×