Skoðun

Forsetinn þarf að geta náð til allra

Amalía Björnsdóttir skrifar
Í byrjun maí var ég viðstödd þegar Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti framboð sitt til forseta Íslands. Ég var spennt að heyra hvernig hann kæmi fyrir á fundi sem slíkum, hvort hann gæti hrifið fólk með sér, hvort þarna væri komin frambjóðandi fyrir mig.  Ég hafði nokkrum vikum áður nefnt það við samstarfsmann minn að Guðni væri hugsanlegt forsetaefni. Hann hefði menntun og þekkingu til að sinna starfi forseta, virkaði heildsteyptur og  líklega gæti stóri hluti þjóðarinnar gæti sameinast eða að minnsta kosti sætt sig við hann sem forseta næði hann kjöri.

Í mínum huga þarf sá sem gegnir starfi forseta Íslands að vera ýmsum kostum gæddur. Forsetinn þarf að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar á erlendri grundu, geta tjáð sig af þekkingu um land og þjóð og verið sameiningartákn bæði á gleðistundum og þegar erfiðleikar steðja að. Það er sagt að enginn verði Bandaríkjaforseti nema geta kysst kornabörn og enginn verður forseti Íslands án þess að geta rætt við fólkið í landinu. Það fór ekki framhjá neinum sem voru í Salnum í Kópavogi að Guðni gat rætt við það fólk sem þar var.  Forsetinn þarf að geta náð til allra óháð kyni, aldri og stjórnmálaskoðun. Hann þarf að vera einhver sem Samfylkingarkerlingar, piltar úr Heimdalli, Framsóknarmenn á Fljótsdalshéraði , Vinstri grænir lopatreflar úr 101 og eldri borgarar geta sameinast um svo nefndar séu einhverjar þær stereótýpur sem dregnar hafa verið fram í  kosningabaráttunni sem stuðningsmenn ólíkra frambjóðenda.

Ég er sannfærð um að  Guðni er sá frambjóðandi sem hefur þessa  breiðu skírskotun og gæti orðið farsæll forseti.  Mér sýnast skoðanakannanir vera í samræmi við þessa óformlegu greiningu mína, fylgi hans er mikið hjá öllum aldurshópum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess og bæði hjá konum og körlum. Í könnun MMR frá því um mánaðarmót er Guðni með yfir 50% fylgi hjá öllum hópum nema stuðningsmönnum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Eldskírn Guðna hefur verið á  síðustu vikum á óteljandi fundum og heimsóknum meðal annars á dvalarheimili aldraðra. Alls staðar hefur fólk hrifist með, það fylgir Guðna einhver kraftur og jákvæðni sem er einmitt það sem ég og greinilega fleiri vilja sjá hjá nýjum forseta.

Það hefur verið gaman að starfa sem sjálfboðaliði fyrir framboð Guðna með þeim fjölbreytta hópi sem þar hefur verið.  Ég hvet ykkur til að kjósa á laugardaginn og ég tel að það yrði farsælt að fá Guðna Th. Jóhannesson sem forseta.




Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×