Handbolti

Forsetinn spáir tveggja marka sigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Forsetinn fer fyrir klappliði strákanna okkar í dag.
Forsetinn fer fyrir klappliði strákanna okkar í dag. vísir/hbg
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er eins og rokkstjarna í íþróttahöllinni í Metz og hundeltur af fjölmiðlum.

Hann gaf sér að sjálfsögðu tíma til þess að veita nokkur viðtöl áður en hann fékk sér sæti í stúkunni. Þá var búið að mynda hann í bak og fyrir.

Vísir spurði hann aðeins út í leikinn og Guðni spáir tveggja marka sigri hjá strákunum okkar. „25-23 fyrir okkur,“ sagði forsetinn.

Það er vonandi að nærvera hans veiti strákunum enn meiri kraft.

Forsetinn veitti nokkur viðtöl í höllinni fyrir leik.vísir/hbg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×