Innlent

Forsetinn gefið 1,2 milljónir af launum sínum í góðgerðamál

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. Vísir/Ernir
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, hefur gefið alls 1,2 milljónir króna í góðgerðamál frá því í nóvember síðastliðnum þegar hann fékk launahækkun samkvæmt úrskurði kjararáðs. Frá þessu er greint á vef RÚV en það vakti mikla athygli þegar forsetinn kvaðst ekki ætla að þiggja launahækkunina sem nam um hálfri milljón króna.

Á blaðamannafundi á Bessastöðum, sem reyndar var haldinn vegna stjórnarmyndunar, var Guðni spurður út í launahækkunina.

„Ég bað ekki um þessa kauphækkun. Ég vissi ekki af þessari kauphækkun. Ég þarf ekki þessa kauphækkun,“ sagði forsetinn þá og bætti við að hann hygðist sjá til þess að hækkunin myndi ekki renna í hans vasa.

 

Hann var þá spurður að því hvort að hann myndi láta mismuninn renna annað.

„Þarf ég að segja það?“ spurði Guðni til baka. „Á ég að vera einhver Móðir Theresa hér sem gortar sig af því?“

Nú er ljóst að forsetinn hefur staðið við orð sín og ekki látið hækkunina renna í eigin vasa að því er fram kemur í frétt RÚV. Þar kemur fram, og er haft eftir Guðna sjálfum, að þegar skattar hefðu verið greiddir af kauphækkuninni stæðu eftir 260.401 krónur.

Frá því í nóvember hafi hann látið 300 þúsund krónur á mánuði renna til góðgerðarmála en vill ekki upplýsa um hvaða góðgerðasamtök- eða félög hann hefur stutt.

Upptöku frá blaðamannafundi forseta síðan í nóvember þar sem úrskurður kjararáðs var til umræðu má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Forsetinn segist ekki þurfa óumbeðna launahækkun

Bjarni Benediktsson segist hafa fullan skilning á að fólki þyki úrskurður kjararáðs vera úr öllum takti við það sem hefur verið að gerast í kjaramálum í landinu á undanförnum misserum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×