Lífið

Forseti UFC gaf Gunnari Harley Davidson

Birgir Olgeirsson skrifar
Gunnar Nelson fyrir bardagann síðastliðinn laugardag.
Gunnar Nelson fyrir bardagann síðastliðinn laugardag. Vísir/Getty
„Dana var búinn að lofa að gefa mér Harley Davidson-hjól og ég var bara að rukka hann um það,“ sagði bardagakappinn Gunnar Nelson við MMA-fréttir þar sem hann var spurður út í fund sem hann átti með Dana White, forseta UFC, í höfuðstöðvum UFC í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær.

Líkt og komið hefur fram hafði Gunnar betur gegn Brandon Thatch í UFC síðastliðinn laugardag en fyrir bardagann, auk sigursins, fékk Gunnar 58 þúsund dollar, eða tæpar átta milljónir íslenskra króna. Inni í þessum tölum eru ekki bónusar, greiðslur frá styrktaraðilum og aðrar óopinberar greiðslur sem keppendur fengu.

Gunnar sagði við MMA-fréttir að hann stefnir á að keppa aftur í október og hefur Stephen Thompson verið nefndur sem næsti mótherji hans.

MMA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×