Golf

Forseti PGA rekinn eftir ummæli sín um Ian Poulter

Ted Bishop var umdeildur forseti.
Ted Bishop var umdeildur forseti. AP
Eftir að hafa svarað gagnrýni Ian Poulter á Tom Watson og Nick Faldo hefur Ted Bishop verið sagt upp störfum sem forseta PGA í Bandaríkjunum.

Í nýútgefinni bók sinni fjallar Ian Poulter um frammistöðu Faldo og Watson sem fyrirliðar í Ryder-bikarnum en gagnrýnin á þeirra störf fór eitthvað illa ofan í Bishop sem fór mikinn á samskiptamiðlum í kjölfarið.

Þar kallaði hann Poulter meðal annars „litla stelpu“ og gaf út að hann ætti ekki að gagnrýna menn sem hefðu áorkað meiru í íþróttinni heldur en hann.

Ummæli Bishop þóttu mjög óviðeigandi og PGA í Bandaríkjunum var fljótt að bregðast við en degi seinna var honum vikið úr starfi.

PGA sambandið skilur hversu ábyrgðarfullu hlutverki það gegnir í golfheiminum og við gerum miklar kröfur til okkar allra,“ segir í yfirlýsingu frá PGA sem gefin var út í kjölfarið. „Við reynum það sem við getum til þess að allir geti notið þess að iðka golf og ummæli Ted Bishop voru svo sannarlega ekki í anda þess sem PGA stendur fyrir. Við biðjumst velvirðingar á ummælum hans.“

Bishop hafði starfað sem forseti PGA í Bandaríkjunum frá árinu 2012 en forsetatíð hans hefði að öllu óbreyttu endað í lok nóvember. Hann hefur verið nokkuð umdeildur í starfi sínu en hann skrifaði á sínum tíma 85 blaðsíðna skýrslu um af hverju Tom Watson ætti að vera fyrirliði Ryderliðs Bandaríkjanna.

Fyrirliðatíð Watson var ekki góð en bandaríska liðið tapaði illa fyrir því evrópska á Gleneagles í síðasta mánuði og töluverð dramatík var í kjölfarið um stjórnarhætti Watson eins og frægt er orðið.

Þá beitti Bishop sér fyrir því að setja á laggirnar keppni um lengsta upphafshöggið á PGA-meistaramótinu, sem fór misvel ofan í marga af bestu kylfingum heims sem voru beðnir um að taka þátt.

Nýr forseti PGA í Bandaríkjunum verður kosinn í lok nóvember á ársfundi sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×