Sport

Forseti ÍSÍ sakaður um hroka og dónaskap: „Maðurinn er að hóta þessum samböndum“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, lögmaður og meðstjórnandi hjá Fimleikasambands Íslands, vandar Lárusi Blöndal, forseta ÍSÍ, ekki kveðjurnar í pistli sem hún skrifar á Facebook-síðu sína. Henni ofbýður þau orð sem Lárus lét falla um viðbrögð FSÍ og KKÍ við úthlutun úr Afrekssjóði 2017. Alla frétt Stöðvar 2 um það mál má sjá í spilaranum hér að ofan.

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, sagði í viðtali við íþróttadeild eftir úthlutunina að hann vonaðist til að 18 milljóna króna styrkur sambandsins úr Afrekssjóði myndi allt að tvöfaldast við næstu úthlutun í vor en honum var ekki skemmt að Handknattleikssambandið fékk tíu milljónum krónum meira en karfan. Bæði sambönd fara með A-landslið á stórmót á árinu.

Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambandsins, gekk mun lengra í gagnrýni sinni en eftir að hún rauk á dyr við úthlutun úr Afrekssjóði ræddi hún við íþróttadeild og sagði meðal annars: „Það fyllir mann vissu vonleysi þegar maður er að berjast í þessu.“

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var Lárus Blöndal spurður út í þessi viðbrögð þar sem hann sagði að þau væru ekki til þess fallin, að hans mati, að þessi sambönd myndu fá meira við seinni úthlutun Afrekssjóðs í vor.

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, fannst þetta furðuleg ummæli og sagði meðal annars í viðtali í Bítinu í morgun: „Sem formaður KKÍ myndi ég aldrei svara félagi í mínu sambandi svona.“

Hótanir?

„Þá er nú eiginlega komið að því að ég verð að tjá mig um þetta mál.“ Svona hefst pistill Jarþrúðar Hönnu, meðstjórnanda í Fimleiksambandinu, þar sem hún lætur forseta ÍSÍ heyra það.

„Ef ÍSÍ gæti skýrt úthlutunarreglurnar svo vel sé þá væri mögulega hægt að sætta sig við úthlutunina eins og hún er en meðan framkvæmdarstjóri og formaður úthlutunarnefndar geta ekki gefið skýr svör um eftir hverju er farið við úthlutun þá geta þessi sambönd ekki vel við unað.“

Jarþrúður segist hafa skoðað úthlutanir undanfarinna ára á öllum helstu styrkjum sem sérsamböndin eru að fá frá ÍSÍ og að þar standi ekki steinn yfir steini þegar skoðaðar eru úthlutunarreglur og skýringar forsvarsmanna ÍSÍ.

„Eðlilega setur að manni óhug þegar ljóst er að þeir fjármunir sem sambandið hefur á milli handanna í afreksstarf margaldast á næstu árum að reglurnar séu ekki skýrari og gegnsærri,“ skrifar hún.

„Getur verið að forsvarsmenn ÍSÍ hafi ekki kynnt sér hversu stór fimleikahreyfingin er orðin? Getur verið að það sé að hafa áhrif að fimleikar eru fyrst og fremst kvennaíþrótt? Ef ekki - hverjar eru þá skýringarnar?“

„Mér þykir forseti ÍSÍ sýna svo mikinn hroka og dónaskap gagnvart FSÍ og KKÍ í þessu viðtali að maður veltir fyrir sér hvort honum sé virkilega alvara. Maðurinn er að hóta þessum samböndum og virðst vera að hann telji ákvarðanir ÍSÍ yfir gagnrýni hafnar,“ skrifar Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir.


Tengdar fréttir

Góð viðbót en mikill vill alltaf meira

Ríflega 150 milljónum var úthlutað úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í gær en enn þá er eftir að úthluta 100 milljónum þegar nýr tímamótasamningur tekur gildi. Handboltinn fékk mest en þrátt fyrir hækkun eru ek




Fleiri fréttir

Sjá meira


×