Sport

Forseti ÍSÍ biðst afsökunar: Hefði átt að orða hug minn betur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ er annar frá hægri. Hér er hann á blaðamannafundi ÍSÍ fyrr í vikunni.
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ er annar frá hægri. Hér er hann á blaðamannafundi ÍSÍ fyrr í vikunni. Vísir/Vilhelm
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Afrekssjóður ÍSÍ kynnti fyrr í vikunni fyrri úthlutun sína á árinu 2017 en tvö sérsambönd lýstu yfir óánægju með sinn hlut, sérstaklega forráðamenn Fimleikasambands Íslands.

Sagði Lárus í fréttunum í gær að ummæli þau sem bæði Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambandsins, og Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, létu falla væru ekki til þess fallin að þau fengju meira í næstu úthlutun.

Lárus segir að um misskilning hafi verið að ræða og að hann hafi ekki haft í hótunum við þessi tvö sambönd, eins og Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, lögmaður og meðstjórnandi hjá Fimleikasambands Íslands, sagði á Facebook-síðu sinni.

Yfirlýsingu Lárusar má lesa í heild sinni hér:

„Yfirlýsing frá Lárusi L. Blöndal, forseta ÍSÍ

Með vísan í viðtal við mig á Stöð2 í gærkvöldi varðandi úthlutun úr Afrekssjóði og umræðna sem um það hefur sprottið í dag vil ég koma eftirfarandi á framfæri.

Mér finnst leitt að orð mín hafi misskilist og að einhverjum finnist ég hafa haft í hótunum við þau tvö sambönd sem lýstu yfir óánægju með úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ. Það var alls ekki meining mín og vil ég biðja þá hina sömu afsökunar á því að orða hug minn ekki betur.

Ég var spurður að því hvort þau gætu vænst þess að „fá stærri bita af kökunni” þegar úthlutað verður úr sjóðnum síðar á árinu og svaraði ég því þannig að þessar athugasemdir út af fyrir sig myndu ekki leiða til þess heldur fengju þau úthlutun í samræmi við þær reglur sem þá gilda.

Eins og ítarlega hefur verið kynnt á liðnum mánuðum þá stendur yfir endurskoðun á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ. Næsta úthlutun úr sjóðnum mun taka mið af þeim reglum og að sjálfsögðu mun það gilda um alla þá sem sækja munu um  til sjóðsins. Tilvísun til reglna sjóðsins átti því ekki að skiljast sem hótun til þessara tveggja sérsambanda sem athugasemdir gerðu.

Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ

Vefslóð á umrætt viðtal á Stöð2:


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×