Forseti í feluleik

Fréttablaðið Fastir pennar 21. febrúar 2012 09:39
Forseti í feluleik
Ólafur Stephensen skrifar:
Feluleikur Ólafs Ragnars Grímssonar forseta gagnvart fjölmiðlum, sem biðja um skýr svör um það hvort forsetinn hyggist bjóða sig fram á ný eða ekki, er gagnrýni verður og embætti forsetans sízt til sóma.
Þeim sem hlýddu á áramótaávarp forsetans blandaðist fæstum hugur um að hann hefði tekið ákvörðun um að gefa ekki kost á sér til embættisins á ný í kosningunum næsta sumar. Fljótlega kom þó fram sú kenning, byggð á rýni í texta ræðunnar, að forsetinn hefði skilið eftir þá glufu að gefa kost á sér á ný, fengi hann áskoranir um slíkt. Í framhaldi af þessu var hrundið af stað söfnun undirskrifta undir hvatningu til forsetans um að gefa kost á sér fimmta kjörtímabilið.
Þetta hefur orðið til þess að fjölmiðlar hafa leitað eftir skýrum svörum forsetans um það hvað áramótaávarpið hafi í rauninni þýtt. Og eins gaman og forsetanum getur þótt að vera í fjölmiðlum, bregður nú svo við að hann gefur engin svör og forðast hljóðnemana eins og heitan eldinn. Meira en sex vikur eru frá því að áramótaræðan var haldin og enn sitjum við uppi með textaskýringar annarra en Ólafs Ragnars Grímssonar - og óvissu um það hvað hann ætlast fyrir.
Í tilefni af þeirri sérkennilegu stöðu, sem komin var upp með undirskriftasöfnuninni, endurtóku Fréttablaðið og Stöð 2 spurningu úr fyrri skoðanakönnun miðlanna, þar sem spurt var hvort fólki fyndist að Ólafur Ragnar ætti að gefa kost á sér á nýjan leik. Niðurstaðan var sú að rúmur meirihluti, ívið fleiri en fyrir áramót, telja að forsetinn eigi að gefa kost á sér á ný. Þetta er þó miklu minni stuðningur en forseti, sem hefði setið á friðarstóli og rækt skyldur sínar sem sameiningartákns, myndi fá og svigrúmið fyrir öflugan mótframbjóðanda augljóslega talsvert. Gangurinn í undirskriftasöfnuninni hlýtur líka að hafa valdið forsvarsmönnum hennar vonbrigðum.
Staðreyndin er sú, að fullt tilefni gæti verið til þess að trúverðugur mótframbjóðandi skoraði Ólaf Ragnar Grímsson á hólm í kosningunum í sumar - ef hann gefur kost á sér áfram. Annars vegar hefur hann þróað forsetaembættið með umdeilanlegum hætti, ekki sízt með beitingu málskotsréttarins og pólitískum yfirlýsingum sem gengið hafa þvert á stefnu stjórnvalda. Hins vegar orka ýmis ummæli hans og gjörðir í aðdraganda hrunsins tvímælis, eins og rakið var í rannsóknarskýrslu Alþingis.
Með því að viðhalda óvissunni um áform sín spillir forsetinn hins vegar fyrir hugsanlegum mótframbjóðendum. Það verður að sjálfsögðu að vera klárt hvað hann ætlar að gera, áður en aðrir fara að tilkynna framboð.
Þessi framkoma forsetans er ekki aðeins ókurteisi við þjóðina, eins og Róbert Marshall alþingismaður orðaði það um helgina. Þetta er pólitísk refskák af því tagi sem stjórnmálamaðurinn Ólafur Ragnar Grímsson hefði verið fullsæmdur af, en sómir ekki embætti forseta Íslands.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Forseti í feluleik