Golf

Forseti GSÍ um kostnaðinn hjá Ólafíu: „Hún þarf á meiri stuðningi að halda“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Golfsamband Íslands mun leggja sitt af mörkum til að fjárhagslegur stuðningur við Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur verði ásættanlegur en mikill kostnaður fylgir þátttökurétti hennar á LPGA mótaröðinni.

Ólafía Þórunn hafnaði í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA mótaröðina um síðustu helgi. Ljóst er að Ólafía verður á ferð og flugi á næsta ári og þar sem ekkert víst er með tekjur samhliða mótasókn hennar er ljóst að hún þarf, fyrst um sinn alla vega, að leggja út sjálf fyrir kostnaðinum.

„Við reynum að styðja hana eins og við getum. Það er aðallega Forskot, afrekssjóður kylfinga, sem styður við bakið á henni. GSÍ á aðild að þeim sjóði ásamt fleiri fyrirtækjum. Við höfum stutt við bakið á henni hingað til og ég efast ekki um að við höldum áfram að gera það,“ segir Haukur Birgisson, forseti Golfsambands Íslands.

„Hún þarf samt á meiri stuðningi að halda því þetta er kostnaðarsöm keppni og mikil fórn sem felst í því að vera á bandarísku mótaröðinni. Ég vona að einhver fyrirtæki sjái hag sinn í því að koma til móts við hana og styðja hana.“

Haukur segir að vel hafi gengið á undanförnum misserum að safna styrktaraðilum sem meðal annars hafi gert Ólafíu kleift að sækja mót víðsvegar um heiminn.

„Þessi mótaröð fer fram um öll Bandaríkin og Suður-Ameríku. Ferðakostnaður er mikill og líka kostnaður við gistingu. Hugsanlega þarf að ráða kylfubera og svo framvegis. Þetta er mikill kostnaður en við munum reyna að styðja hana en hún þarf líka á stuðningi annarra að halda,“ segir Haukur Birgisson.

Allt viðtalið úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá í spilarnum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Næsta markmið er að vinna mót á LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki enn komist í gegnum helminginn af þeim heillaóskum og skilaboðum sem hún fékk eftir að hún tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum, þeirri sterkustu í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×