Innlent

Forsetakosningar 2016: Ekki hægt að mæla með fleiri en einum forsetaframbjóðanda

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Alls hafa átta boðað framboð til embættis forseta en búast má við að fleiri gefi kost á sér þegar nær dregur.
Alls hafa átta boðað framboð til embættis forseta en búast má við að fleiri gefi kost á sér þegar nær dregur. vísir/gva
Forsetaframbjóðendur eru nú í óðaönn við að safna meðmælum um allt land. Framboðsfrestur rennur út 21. maí næstkomandi en lögum samkvæmt þurfa frambjóðendur að skila inn meðmælum frá að minnsta kosti 1.500 kosningabærum mönnum úr öllum landsfjórðungum.

En hvað þurfa meðmælendur að hafa í huga?

Frambjóðendur fara ýmsar leiðir við að safna tilskyldum fjölda meðmælenda. Það getur verið vandasamt að safna þessum fjölda og fara frambjóðendur því ýmsar leiðir. Sumir taka upp símtækið og hringja í fólk, aðrir mæta á vinnustaði og skóla eða á fjölfarna staði á borð við Kringluna og Smáralind, svo fátt eitt sé nefnt.

Það sem meðmælendur þurfa hins vegar að hafa í huga áður en þeir rita nafn sitt á blaðið er að enginn má mæla með fleirum en einum frambjóðanda. Ef þeir gera það þá verður sá hinn sami ekki meðmælandi neins.

Þá þurfa allar upplýsingar að vera réttar, þ.e nafn og kennitala ásamt lögheimili en mikilvægt er að rétt lögheimili sé skráð í því kjördæmi sem við á. Jafnframt þurfa meðmælendur að rita nafn sitt með eigin hendi. Eyðublaðið er svo yfirfarið af kjörstjórn á hverjum stað.

Hvað þarf til að geta boðið sig fram?

Alls hafa níu boðað framboð til embættis forseta en búast má við að fleiri gefi kost á sér þegar nær dregur.

Samkvæmt stjórnarskrá Íslands er kjörgengur til forseta hver 35 ára gamall maður sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis og hefur óflekkað mannorð. Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1.500 kosningabærra manna og mest 3000. Sá sem flest fær atkvæði, ef fleiri en einn eru í kjöri, er rétt kjörinn forseti. Ef aðeins einn maður er í kjöri þá er hann kjörinn án atkvæðagreiðslu. Þá má forseti lýðveldisins ekki vera alþingismaður né hafa með höndum launuð störf í þágu opinberra stofnana eða einkaatvinnufyrirtækja.

Sjá einnig: Lítið breyst í 64 ár

Hverjir hafa boðað framboð?

Aldrei fleiri hafa boðað framboð og nú, en sem fyrr segir eru frambjóðendur nú orðnir níu talsins.

Í forsetakosningunum árið 1980 voru frambjóðendurnir fjórir. Þeim lauk með sigri Vigdísar Finnbogadóttur sem sat í embætti til ársins 1996. Þá voru frambjóðendur aftur fjórir talsins og þeirra á meðal var Ástþór Magnússon sem einnig gefur kost á sér í ár.

Árið 2012 voru buðu sex einstaklingar sig fram, þrír karlar og þrjár konur. Frambjóðendur geta í mestalagið verið 159 talsins, að því gefnu að enginn frambjóðandi skili meiri en lágmarksfjölda meðmælenda.

Þeir sem boðað hafa framboð í ár eru:

•    Ari Jósepsson vídeóbloggari.

•    Ástþór Magnússon, stofnandi Friðar 2000.

•    Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur.

•    Halla Tómasdóttir athafnakona.

•    Heimir Örn Hólmarsson rafmagnstæknifræðingur.

•    Hildur Þórðardóttir þjóðfræðingur.

•    Sturla Jónsson vörubílstjóri

•    Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahússprestur.

•    Þorgrímur Þráinsson rithöfundur.

Fleiri hafa gefið til kynna að þeir íhugi framboð. Það eru meðal annars Andri Snær Magnason rithöfundur, Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari, Hrannar Pétursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vodafone, Linda Pétursdóttir athafnakona, Sigrún Stefánsdóttir, fjölmiðlakona og fráfarandi forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, Stefán Jón Hafstein, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnun Íslands, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins. Þá hafa fleiri nöfn borið á góma, til að mynda Össurar Skarphéðinssonar, þingmanns Samfylkingarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá niðurstöður úr nýjustu skoðanakönnun fréttastofu 365 sem birt var 10. mars. Þar nýtur Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, langmests stuðnings, en hún hyggur ekki á framboð í ár. Spurt var út í afstöðu til níu manna sem ýmist hafa verið orðaðir við forsetaembættið eða hafa gefið kost á sér í það. 


Tengdar fréttir

Heimir Örn býður sig fram til forseta

Heimir Örn Hólmarsson, rafmagnstæknifræðingur, hyggst bjóða sig fram til forseta Íslands en kosningar fara fram þann 25. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×