Lífið

Forsetaframbjóðandi í nýju Rottweiler myndbandi

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Andri Snær Magnason forsetaframbjóðandi kemur fram í splunkunýju lagi XXX Rottweiler hundanna. Nýja lagið heitir Negla og er það fyrsta sem sveitin sendir frá sér í eitt ár en lagið kemur í tæka tíð fyrir stórtónleika þeirra á Secret Solstice hátíðinni en þeir hita upp fyrir M.O.P. á laugardag.

Það hlýtur að teljast við hæfi að Andri Snær skuli vera í myndbandi hundanna sem upphaflega hétu 110 Rottweiler hundar. Þar var nafnið tilvísun í póstnúmer Árbæjarhverfis þaðan sem Andri Snær og margir hundanna eru. Nafninu var svo breytt eftir að Erpur Eyvindarson gekk til liðs við sveitina enda Kópavogsbúi í húð og hár.

Aðrir sem koma fram í vídjóinu eru Gísli Pálmi, Ómar Ragnarsson, Þorsteinn J., Egill "Tiny", Reynir Lyngdal og Dóri DNA.

Myndbandið má sjá hér að ofan.

Negla og taka svo afleiðingunum

„Þetta er klassísk heimsspeki,“ segir Erpur um nýja lagið. „Ef þú ætlar að gera eitthvað þá verður þú að gera það eins og Aron Gunnarsson. Fara alla leið, negla og bara taka afleiðingunum. Lagið er allt á þeim nótum og farið yfir víðan völl.“

Myndbandið er skotið á einum degi í 101 Reykjavík. „Við vorum í stuði við krakkarnir. Svona strákadagur þar sem við vorum bara að leika okkur.“

Tónleikar Rottweiler á Solstice verða þeir fyrstu í lengri tíma og er mikil tilhlökkun á meðal liðsmanna sem og aðdáenda.

„Við erum að hita upp fyrir M.O.P. á laugardag. Við höfum verið að tala um það lengi að fara gera eitthvað en sparkið í rassinn var að við erum að fara spila þarna á brjáluðu giggi. M.O.P. er mjög kúl lið og þetta verður brjálað gigg þar sem við höfum ekki spilað í lengri tíma.“

Á appi Solstice þar sem hægt er að búa til sína eigin dagskrá má sjá vísbendingar þess að tónleikar Rottweiler verði þétt mannaðir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×