Lífið

Forsetadóttirin á von á barni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Chelsea Clinton, dóttir Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hillary Clinton, er ólétt. Þetta tilkynnti Chelsea á viðburði í New York í gær, fimmtudag.

"Ég þarf að bæta einu við sem snöggvast. Marc og ég erum mjög spennt því við munum eignast okkar fyrsta barn seinna á þessu ári. Ég vona bara að ég verði barninu mínu jafngóð og móðir mín var við mig," sagði Chelsea.

Þá fagnaði Bill afabarninu á Twitter.

Chelsea og athafnamaðurinn Marc Mezvinsky giftu sig í New York í júlí árið 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×