Lífið

Forsetaáskorun Vísis: Lék jólasvein í Héraðsdómi Reykjavíkur

Nanna Elísa Jakobsdóttir og Samúel Karl Ólason skrifa
Ástþór tók Forsetaáskorun Vísis.
Ástþór tók Forsetaáskorun Vísis. Vísir/Garðar
Ástþór Magnússon er eini forsetaframbjóðandinn sem ekki getur valið á milli hunda og katta, hann heldur upp á Sverri Stormsker og draumaferðalagið hans væri að ferðast um Indland.

Þetta og fleira kemur fram hér að neðan í svörum Ástþórs við Forsetaáskorun Vísis.

Vísir leggur mikið upp úr því að umfjöllunin um forsetakosningarnar sé ítarleg og úr öllum áttum, líka skemmtileg. Því lögðum við fyrir alla forsetaframbjóðendur skemmtilegan spurningalista með spurningum af öllu tagi, sumar erfiðari en aðrar en allar í persónulegri kantinum. Vísir mun birta svörin nú í vikunni fyrir kosningarnar sem fram fara 25. júní. Elísabet Jökulsdóttir er næsti frambjóðandi til forseta Íslands sem tekur áskorunina.  

Lambalæri er í uppáhaldi hjá Ástþóri.Vísir
Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Þingvellir

Hundar eða kettir?

Bæði frábær en mismunandi persónuleikar. Hef átt bæði hund og ketti. 

Hver er stærsta stundin í lífi þínu?

Fæðing dóttur minnar.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Lambalæri eða lambahryggur.

Hvernig bíl ekur þú?

Ford Focus rafbíl.

Jólaleg mynd frá Ástþóri.Vísir/Ástþór
Besta minningin?

Brúðkaupið mitt í Þingvallarkirkju.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já svo sannarlega, var handtekinn og færður í fangelsi fyrir það að mótmæla stuðningi Íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak. 

Hverju sérðu mest eftir?

Að hafa látið Landsbankann blekkja mig til að fjárfesta í bandarísku nautakjöti, því bankaklíkan stal bæði peningunum og kjötinu. 

Reykir þú?

Nei

Uppáhalds drykkur(áfengur)?

Rauðvín

Hér er viðtal við Ástþór í Fréttablaðinu í nóvember árið 2002 eftir að hann var handtekinn eins og hann segir frá hér að ofan.Vísir/Timarit.is
Uppáhalds bíómynd?

Schindlers list

Uppáhalds tónlistarmaður?

Sverrir Stormsker

Hvaða lag kemur þér í gírinn?

Sigurlagið með Sverri Stormsker

Draumaferðalagið?

Indland

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já heldur betur, sigldi með varðskipi í þorskastríðinu sem ljósmyndari Vísis og Landhelgisgæslunnar. Tók þá ljósmynd sem varð til að hjálpa málstað Íslands mikið á alþjóðlegum vettvangi, myndin sýndi breskan togara á fiskimiðunum með sjóræningjafána. Í þessari ferð lést einn Íslendingur þegar herskip keyrði inní síðu varðskipsins. Svo hef ég flogið inní stríðssvæði og auðvitað séð ýmislegt í þeim ferðum.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Að leika jólasvein í Héraðsdómi Reykjavíkur til að mótmæla misnotkun stjórnvalda á réttarkerfinu þegar þau reyndu að fá mig dæmdan í 16 ára fangelsi til að þagga niður í gagnrýni mínni á ráðabruggið að nota Íslenskar farþegaflugvélar til að flytja hermenn í Íraksstríð. 

Rómantískasta stund Ástþórs var í hvalaskoðun.Vísir/EPA
Hefur þú viðurkennt mistök?



Hverju ertu stoltastur af?

Af verkum mínum stendur það uppúr að friðarflugið til Baghdad varð kveikjan að fjöldamótmælum víða um heim sem rústaði pólitískri samstöðu um innrás Clinton í Írak. Fyrir það fékk ég heilagan gullkross Grísku rétttrúnaðarkirkjunnar. Þá urðu mótmæli mín í Héraðsdómi til þess að ekkert varð úr ráðabruggi Íslenskra ráðherra um að leggja Icelandair flugvélar til herflutninga.

Rómantískasta augnablik í lífinu?

Hvalaskoðunarferð með konunni minni. 

Trúir þú á líf eftir dauðann?



Ef það væri gerð Hollywood kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig?

Hann er ekki fæddur


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×