Innlent

Forsætisráðherra bjartsýn eftir fyrsta formlega fund formanna um breytingar á stjórnarskránni

Heimir Már Pétursson skrifar
Forsætisráðherra er bjartsýn á að stjórnmálaflokkarnir nái saman um hvernig unnið verði að breytingum og heildarendurskoðun á stjórnarskránni. Byggt verði á þeirri miklu vinnu sem þegar liggi fyrir og hún vilji sjá fyrstu breytingarnar ná fram að ganga á þessu kjörtímabili.

Formenn stjórnmálaflokkanna hafa fundað óformlega um breytingar á stjórnarskránni frá því ný ríkisstjórn tók við völdum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að á þeim fundum hafi verið farið yfir þann feril sem flokkarnir geti séð í málinu. Í dag komu formenn og fulltrúar flokkanna hins vegar í fyrsta skipti saman til formlegs fundar um málið í Ráðherrabústaðnum.

„Það liggur auðvitað fyrir að þessir flokkar hafa ólíka sýn á stjórnarskrárbreytingar. En ég er mjög bjartsýn eftir þennan fund á að við séum sammálá um hvernig við viljum vinna þessi mál. Við eigum auðvitað eftir að halda áfram í raun og veru að vinna saman að því hvernig við viljum til dæmis tryggja samráð við almenning í gegnum þetta ferli,“ segir Katrín.

Þeir sem vilja ganga lengst og hraðast fram vilja að tillögur stjórnlagaráðs frá árinu 2011 verði samþykktar lítið breyttar eins fljótt og auðið er. En aðrir vilja fara mishægar í sakirnar.

Forsætisráðherra segir að grundvallarhugmyndin nú sé að reyna að ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni á tveimur kjörtímabilum.

„Það er uppleggið að ljúka heildarendurskoðun og eins og ég segi byggja þeirri vinnu sem fyrir liggur. Og þar auðvitað vega þungt tillögur stjórnlagaráðs sem unnar voru á kjörtímabilinu 2009  til 2013. En það hefur auðvitað verið vinna síðan og fyrir þann tíma líka.“

„Þetta er allt undir og okkar hlutverk er líka að eiga  virkt samtal við almenning sem verður þá kannski með ólíkum hætti eftir því hvaða efnisatriði eru undir. Þetta stendur fyrir dyrum að fara að vinna áætlun og samhliða því hvaða tímaáætlun við gefum okkur um ferlið. Ég auðvitað vil sjá breytingar á stjórnarskrá í lok þessa kjörtímabils og að við höldum okkur við að reyna að ljúka þessu á þessum tíma (tveimur kjörtímabilum),“ segir Katrín Jakobsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×