Skoðun

Forsætisráðherra axlar ábyrgð

Sigurður Oddsson skrifar
Það kom að því að þjóðin eignaðist mann við Austurvöll, sem axlar ábyrgð á meðferð skattpeninga. Ekki var það þannig, þegar Landsímahúsið var selt og annað húsnæði tekið á leigu eftir innréttingar á kostnað Jóns og Gunnu. Það er verðugt markmið að koma Alþingi í eigið húsnæði fyrir 100 ára afmæli fullveldisins. Haldið er fram að við breytingu LSH frá Hringbraut tefjist ný hönnun byggingar sjúkrahússins um allt að tíu ár. Það er alrangt. Sjúkrahúsið verður bæði fyrr tilbúið, betra og ódýrara verði nú strax breytt frá Hringbraut í Fossvog.

Í fyrsta lagi er byggingasvæði mikið aðgengilegra í Fossvogi og að mestu uppgröftur, en við Hringbraut er mest klöpp. Miklu fljótlegra og ódýrara er að byggja hátt hús í Fossvogi, en mörg lágreist hús dreifð yfir stórt svæði við Hringbraut. Best væri að byrja strax jarðvinnu og grafa út alla lóðina. Teikna og hanna húsið samtímis því, þannig að vinna við grunn og uppsteypu geti hafist strax að uppgreftri loknum.

Í öðru lagi eru góðir arkitektar orðnir sérfræðingar í hönnun sjúkrahúsa eftir reynsluna af hönnun sjúkrahúss við Hringbraut, þar sem þeim var þröngur stakkur sniðinn. Eflaust hefði margt verið leyst á annan hátt, ef nóg hefði verið plássið. Fái þeir tækifæri til að hanna nýtt hús frá grunni í Fossvogi þá munu þeir vera snöggir að því og í leiðinni sníða af ýmsa vankanta, sem kunna að vera á húsinu við Hringbraut.

Of lítið pláss á lóð RÚV

Ég hefi fylgst með umræðunni um byggingu háskólasjúkrahúss í mörg ár. Í byrjun var rætt um Hringbraut, Fossvog og Vífilsstaði. Eini samanburður á staðsetningu, sem ég hefi séð var fyrir nokkrum árum. Þá báru forstjóri og framkvæmdastjóri LSH Hringbraut saman við einhvern stað fyrir utan Elliðaár. Niðurstaðan var Hringbraut í hag. Hún byggðist á forsendum, sem áttu betur við Fossvog, en Hringbraut. Þannig sönnuðu þeir að nýr spítali væri best staðsettur í Fossvogi.

Ég hefi blandað mér í umræðuna um nýjan spítala með nokkrum blaðagreinum, sem margar hafa endað með hvatningu til þess að gerður væri raunhæfur samanburður á Hringbraut og Fossvogi. Ánægjulegt er að nú sé forsætisráðherra, sem hugsar út fyrir kassann og hefur kjark til að láta skoða hlutina miðað við aðstæður dagsins í dag.

Ekki líst mér á að byggja sjúkrahúsið á lóð RÚV. Þar er of lítið pláss. RÚV má bjarga á einfaldari hátt með því að sameina Rás 1 og 2 í eina Rás. Líklega nægir að hætta að endurflytja efni til að fá eina góða rás, sem væri ódýrari rekstur en tvær. Þann hluta lóðar, sem ekki nýtist RÚV mætti selja fyrir byggingu minni íbúða, eins og nú er í tísku. Margir vinnustaðir og skólar eru í hjólafæri við Háaleiti og LSH í göngufæri. Það væri ekki ónýtt fyrir LSH að eiga blokk þar til útleigu fyrir starfsfólk!




Skoðun

Sjá meira


×