Lífið

Forréttindi að starfa við íslenska kvikmyndagerð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sigríður Margrét Vigfúsdóttir, betur þekkt sem Sarma, hlaut heiðursverðlaun Eddunnar í ár fyrir yfir tuttugu ára þrotlaust starf í þágu íslenskra kvikmynda á erlendri grundu.

Sarma er Siglfirðingur og lærði stjórnmálafræði, heimspeki, kvikmyndafræði og klippingu í Frakklandi. Hún hefur frá árinu 1992 stýrt skrifstofu Media á Íslandi en það er evrópskt átak til að efla framleiðslu á kvikmyndum og sjónvarpsefni.

Þá situr hún bæði í stjórn og framkvæmdastjórn evrópska kvikmyndasjóðsins Euromas. Hún tók nýlega við stöðu sérfræðings um kvikmyndamál hjá Rannís fyrir nýja evrópskra kvikmyndaáætlun sem heitir Creative Europe.

Sarma var ekki viðstödd hátíðina en dóttir hennar, Oddný Eva, tók við verðlaununum fyrir móður sína úr höndum forsetafrúarinnar Dorritar Moussaieff.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×