MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 08:06

Björgólfur Thor hefur grætt 18 milljarða á Actavis

VIÐSKIPTI

Forréttindi að fæðast snemma á árinu

Fréttablaðið Íslenski boltinn 19. mars 2012 07:00
Forréttindi að fæðast snemma á árinu
MYND/DANÍEL
Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað drengjum 17 ára og yngri mætir Dönum í fyrsta leik sínum í milliriðli Evrópumótsins á morgun. Liðið, sem skipað er drengjum fæddum árið 1995, þykir afar efnilegt. Það varð Norðurlandameistari á Akureyri síðastliðið sumar þar sem Danir lágu í valnum í úrslitaleik 1-0. Ekki nóg með það heldur náði b-lið Íslands fjórða sæti í mótinu.

Íslenska liðið vann riðil sinn í undankeppni EM í október þar sem mótherjarnir voru Grikkland og Sviss auk heimamanna í Ísrael. Sigur í milliriðli tryggir liðinu sæti í úrslitakeppni EM U17 liða sem fram fer í Slóveníu í maí.

Gunnar Guðmundsson, þjálfari liðsins, tilkynnti 18 manna hóp sinn í síðustu viku. Þegar fæðingarmánuðir drengjanna eru skoðaðir kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Átta drengjanna eru fæddir í janúar eða febrúar og enginn þeirra í nóvember eða desember. Þá eiga fimmtán drengjanna eða 83 prósent þeirra afmæli á fyrri hluta ársins.
Einn lykilmann vantar í íslenska liðið. Hafnfirðingurinn Þórður Jón Jóhannesson, sem er á mála hjá AGF í Danmörku líkt og tveir aðrir leikmenn liðsins, er frá vegna meiðsla. Þórður Jón er fæddur í janúar.


Svipað hjá stelpunum
U17 ára landslið kvenna náði frábærum árangri á síðasta ári. Liðið varð Norðurlandameistari í júlí í Finnlandi og spilaði síðar í mánuðinum í úrslitakeppni Evrópumótsins í Þýskalandi eftir að hafa svo gott sem rúllað upp undan- og milliriðlum sínum. Liðið hafnaði að lokum í fjórða sæti eftir töp gegn Spánverjum og Þýskalandi.
Ef fæðingarmánuðir stúlknanna sem urðu Norðurlandameistarar og höfnuðu í fjórða sæti á EM eru skoðaðir kemur í ljós að svipað er uppi á teningnum og hjá drengjunum. Átta stúlknanna eru fæddar í janúar, febrúar eða mars en engin þeirra í október, nóvember eða desember. Alls eiga tólf stelpur eða 67 prósent þeirra afmæli á fyrri hluta ársins.


Forréttindi að fæðast snemma á árinu
MYNDASAFN KSÍ
Þeir "betri“ verða betri og þeir "lakari“ lakari
Í bókinni Outliers fjallar Malcolm Gladwell um það hvaða þættir hafa áhrif á hvort fólk nái eftirtektarverðum árangri í lífinu. Þar bendir Gladwell á hversu miklu máli skipti hvort krakkar séu fæddir 1. janúar eða 31. desember þegar kemur að árangri í íþróttum. Þar sem börn fædd snemma á árinu eru í flestum tilfellum líkamlega og andlega þroskaðri virðast þau við fyrstu sýn betri íþróttamenn en „jafnaldrar" þeirra fæddir síðar á árinu. Fyrir vikið geta þau gert meira, vekja meiri athygli, þjálfarar sýna þeim meiri áhuga og þau fá betri þjálfun. Á Íslandi birtist þessi staðreynd til dæmis þegar yngri flokkum er skipt í tvo eða fleiri hópa eftir styrkleika á æfingum.

Samkvæmt Gladwell og þeim rannsóknum sem hann vitnar í vindur þetta upp á sig svipað og hvernig þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari. Í stað þess að yngri krakkarnir nái þeim eldri verður bilið alltaf breiðara. „Efnilegri" krakkarnir keppa stöðugt gegn sterkum andstæðingum, eru valdir í unglingalandslið og bæta sig hraðar en yngri krakkarnir. Fæðingardagur þeirra hefur áhrif á möguleika þeirra til að ná langt í íþróttinni.


Forréttindi að fæðast snemma á árinu
MYNDASAFN KSÍ
Íslenskar rannsóknir staðfesta fæðingardagsáhrif
Lýður Vignisson fékk staðfestingu á fæðingardagsáhrifum hér á landi í lokaverkefni sínu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009. Hann tók saman upplýsingar um fæðingardag unglingalandsliðsmanna í knattspyrnu karla á árunum 1994-2000. Í ljós kom að 65 prósent landsliðsmannanna voru fæddir fyrri hluta ársins. Þá áttu tvöfalt fleiri afmæli fyrstu þrjá mánuði ársins en þá síðustu þrjá.

Í BA-ritgerð Hrannars Leifssonar við Háskóla Íslands frá síðasta ári kemur fram að þeir knattspyrnuiðkendur sem fæddir eru fyrstu mánuði ársins eru mun líklegri til þess að skila sér upp í 2. flokk félaganna en þeir sem fæddir eru seint á árinu. Eftir því sem iðkendur verða eldri eru færri í hverjum flokki sem fæddir eru á síðasta ársfjórðungi (okt-des). Úr úrtaki Hrannars voru aðeins 14 prósent drengja og 12 prósent stúlkna í 2. flokki fædd á síðasta ársfjórðungi.

Því eru fæðingardagsáhrifin ekki aðeins umhugsunarverð þegar kemur að möguleikum barna og unglinga að ná langt í sinni íþróttagrein. Einnig er áhyggjuefni ef iðkendur fæddir seint á árinu hrökklast fyrr úr íþróttum. Forvarnagildi íþrótta ætti að vera flestum ljós og varla þarf að hafa mörg orð um þau í samantekt þessari.


Ekki öll nótt úti fyrir desemberbörnin
Foreldrar barna fædd seint á árinu sem eru að stíga sín fyrstu skref á knattspyrnuvellinum þurfa þó ekki að örvænta. Rannsóknir Ashworth og Hendels frá árinu 2007 sýndu að atvinnumenn í Þýskalandi höfðu heilt yfir umtalsvert hærri tekjur en kollegar þeirra fæddir snemma á árinu. Aðalástæðuna telja þeir vera þá að núverandi flokkakerfi ýti undir brottfall leikmanna sem fæddir eru seint á árinu. Þeir fáu leikmenn sem halda út og komast í gegnum þetta misrétti þróa með sér hugarfar sigurvegarans og þeim eru allir vegir færir.

kolbeinntumi@365.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 22. maí 2013 06:00

Lærið opnað að aftan

"Hún er með risastóran skurð eftir að lærið var opnað að aftan," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um meiðsli Margrétar Láru Viðarsdóttur. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:31

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - FH 0-1

Róbert Örn Óskarsson var hetja FH-inga í 1-0 sigri á Blikum í Pepsi deild karla í kvöld. Blikar fengu víti á 89. mínútu og gátu jafnað leikinn en Róbert varði vítið og tryggði gestunum stigin þrjú. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:29

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Fram 2-0

Skagamenn fengu sín fyrstu stig í sumar með sigri á Fram, 2-0, í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Páll Gísli Jónsson, markmaður íA, átti stórleik í fyrri hálfleik og bjargaði Skagamönnum oft... Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:25

Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Stjarnan - Valur 1-1

Stjarnan og Valur gerður 1-1 jafntefli í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjörnumenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins en g... Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 17:30

Feðgin dæmdu í 1. deild kvenna

Bergur Þór Steingrímsson og dóttir hans, Ellen Elísabet, voru aðstoðardómarar á leik í 1. deild kvenna nú um helgina. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 14:54

Þetta er hið versta mál

Fylkismaðurinn Pablo Punyed braut bein í fæti í gær og verður frá keppni næstu átta vikurnar hið minnsta. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 14:30

Neitar að þreyta hafi valdið uppköstunum

Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, kastaði upp í viðureign liðsins gegn ÍBV á Hásteinsvelli í gær Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 13:11

Margrét Lára snýr aftur í landsliðið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið 23 leikmenn í A-landslið kvenna sem mun leika æfingaleik gegn Skotum á Laugardalsvelli þann 1. júní næstkomandi. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 08:00

Ég er með breitt bak

Róbert Örn Óskarsson hefur farið á kostum á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum FH í byrjun tímabils. Hafnfirðingar sækja Breiðablik heim í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 19:00

Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikir á sama stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Fylkir 2-2

Keflavík og Fylkir þurftu að skipta með sér stigunum í leik liðanna suður með sjó í 4. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en bæði lið klúðruðu víta... Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - Víkingur 1-0 | Eitt skot eitt mark

Þór Akureyri náði í sín fyrstu stig á þessari leiktíð eftir 1-0 sigur gegn Víkingi frá Ólafsvík í Pepsi-deild karla í dag. Liðin mættust á Akureyri og höfðu heimamenn betur í heldur bragðdaufum leik. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 0-2 | Fullt hús hjá KR

KR-ingar héldu sigurgöngu sinni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu áfram þegar liðið vann sanngjarnan 2-0 útisigur á ÍBV í Eyjum. Baldur Sigurðsson var enn á ný á skotskónum hjá KR. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 16:21

Einar Hjörleifs byrjar | Simmonds á bekknum

ÍBV tekur á móti KR og nýliðar Þórs og Víkings Ólafsvíkur mætast norðan heiða í 4. umferð Pepsi-deildar karla klukkan 17. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 15:16

Í undirmeðvitund Eyjamanna að vera illa við KR-inga

Stórleikur fer fram í Vestmannaeyjum í dag þegar ÍBV tekur á móti KR í fjórðu umferð Pepsi-deild karla. KR er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki en ÍBV er með sjö stig. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 16:45

Allir leikirnir í Pepsi-deildinni á einum stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis en þá fara fram þrír leikir í 4. umferð. Meira
Íslenski boltinn 19. maí 2013 20:30

Lagði flöskuna á hilluna 18 ára

Líf markvarðarins Gunnleifs Gunnleifssonar, sem allir þekkja sem Gulla, hefur verið kaflaskipt svo ekki sé fastar að orði kveðið. Meira
Íslenski boltinn 19. maí 2013 11:45

FH-ingar ósáttir við ummæli Gylfa Orra

Knattspyrnudeild FH hefur sent Knattspyrnusambandi Íslands kvörtun vegna ummæla formanns dómaranefndar sambandsins um brottvísun fyrirliða FH-inga. Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 00:01

Jafnt hjá Val og ÍBV í frábærum leik | Úrslit í Pepsi-deild kvenna

Valur og ÍBV skildu jöfn 3-3 í bráðfjögurum leik í Pepsí deild kvenna í dag í beinni útsendingu hér á Vísi. Bæði lið fengu urmul færa og hefðu mörkin hæglega getað orðið fleiri. Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 09:00

Yngsti fyrirliði deildarinnar á skotskónum

Guðmunda Brynja Óladóttir og félagar hennar í Selfossliðinu eru með fullt hús eftir tvo leiki í Pepsi-deild kvenna í fótbolta. Hún hefur skorað þrjú af fjórum mörkum liðsins. Fyrsti heimaleikurinn er ... Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 08:34

Botnlanginn sprakk

Anna Garðarsdóttir, leikmaður Selfoss í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu, lagðist inn á spítala í gær þar sem botnlangi hennar sprakk. Meira
Íslenski boltinn 18. maí 2013 06:00

Garðsmennirnir kláruðu leikinn

Magnús Þórir Matthíasson var búinn að vera inn á í aðeins tvær mínútur þegar hann lagði upp jöfnunarmark Keflavíkur gegn Víkingi Ólafsvík í leik liðanna í fyrrakvöld. Meira
Íslenski boltinn 17. maí 2013 21:21

Ingó Veðurguð skoraði í fyrsta sigri Selfyssinga

Selfoss og Grindavík, liðin sem féllu úr Pepsi-deild karla síðasta haust, unnu bæði útisigra í leikjum sínum í 1. deild karla í kvöld en þau höfðu bæði tapað á heimavelli í fyrstu umferðinni. Meira
Íslenski boltinn 17. maí 2013 13:45

Rauða spjaldið hárrétt ákvörðun | Myndband

Gylfi Þór Orrason, formaður dómaranefndar KSÍ, segir að Kristinn Jakobsson hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann rak FH-inginn Guðjón Árna Antoníusson af velli í gær. Meira
Íslenski boltinn 17. maí 2013 20:04

Blikakonur áfram á sigurbraut í Pepsi-deildinni

Breiðablik er með fullt hús eftir þrjár umferðir í Pepsi-deild kvenna eftir 3-0 útisigur á nýliðum Þróttar í fyrsta leik þriðju umferðarinnar sem fór fram á Gervigrasvellinum í Laugardal í kvöld. Umfe... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Forréttindi að fæðast snemma á árinu
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000