Innlent

Fórnuðu úlfalda og gefa kjötið

garðar örn úlfarsson skrifar
Um 250 kíló af kjöti fást af úlfaldanum sem múlsimar fórnuðu í gær
Um 250 kíló af kjöti fást af úlfaldanum sem múlsimar fórnuðu í gær vísir/valli
„Samkvæmt arabískum hefðum verndar blóð úr úlföldum helga staði fyrir óvinveittum öflum,“ segir Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslima á Íslandi.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók fyrstu skóflustunguna að mosku Félags múslima í Sogamýri við sólarupprás í gær. Við það tækifæri var fórnað úlfalda sem félagið fékk sérstaka undanþágu til að flytja til landsins.

Auk tólf meðlima úr æðsta ráði Félags múslima voru fulltrúar frá yfirdýralækni og Matvælastofnun viðstaddir athöfnina sem var hátíðleg og látlaus í senn. Ali Hassan Abd al-Majid al-Tikriti, verkstjóri í sláturhúsi Kaupfélags Skagafjarðar, aðstoðaði Sverri við að skera dýrið.

Skepnan er, að sögn Sverris, gjöf frá Salman bin Abdulaziz al Saud, konungi Sádi-Arabíu. Salman hafi einnig borgað fyrir flutninginn og eina og hálfa milljón króna að auki í innflutningsgjöld.

Sverrir segir að samkvæmt venjum við athafnir þar sem jörð sé helguð fyrir bænahús sé kjöt fórnardýrsins gefið út til samfélagsins.

„Fiskikóngurinn á Sogavegi tók góðfúslega að sér fyrir okkur að verka kjötið og mun afhenda þeim sem vilja endurgjaldslaust í dag. Þetta var ungt dýr og kjötið ætti því að vera meyrt. Það hentar auðvitað best í ýmsa austurlenska rétti,“ segir Sverrir Agnarsson.

Fiskikóngurinn opnar klukkan sjö á virkum dögum.

Uppfært klukkan 9:40

Fiskikóngurinn Kristján Grétarsson segir að verkefnið sé líklega það sérstakasta sem hann hefur tekið að sér. Rætt var við Kristján í Bítinu í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×