Erlent

Fórnarlömb árásanna frá 40 þjóðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Umfangsmikil leit stendur yfir í Brussel.
Umfangsmikil leit stendur yfir í Brussel. Vísir/AFP
Það sem við vitum

  • Sprengjur voru sprengdar á Zavantem flugvellinum og í lest við Maelbeek lestarstöðina í gærmorgun.
  • Minnst 31 lét lífið. Þar af ellefu á flugvellinum og tuttugu í lestinni.
  • Um 270 eru særðir og hefur þriggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir.
  • Bræðurnir Khalid og Ibrahim el-Bakraoui eru sagðir hafa sprengt sig í loft upp. Ibrahim á flugvellinum og Khalid í lestinni. Ekki er búið að bera kennsl á annan sprengjumanninn á flugvellinum.
  • Bræðurnir fæddust báðir í Belgíu og eiga langan sakaferil að baki.
  • Najim Laachraoui, sem talinn er vera sprengjugerðamaður hópsins, gengur enn laus. Hann var þriðji árásarmaðurinn á flugvellinum en flúði þegar sprengja hans sprakk ekki. Miðlar í Belgíu birtu í morgun fréttir um að hann hefði verið handtekinn en þær voru dregnar til baka.
  • Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum.
  • Sprengjugerðarbúnaður fannst í íbúð í borginni og var þar mikið magn af sprengiefni, nöglum, skrúfum og fleira. Fáni ISIS fannst einnig þar.
  • Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur varað Bandaríkjamenn við því að ferðast um Evrópu. Hryðjuverkasamtök skipuleggi að fremja frekari hryðjuverk í náinni framtíð.
  • Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu standa nú yfir í Belgíu og hafa leitir verið framkvæmdar víða.
Ríkissaksóknari Belgíu segir minnst 31 vera látinn vegna árásanna í Brussel í gær og að um 270 hafi særst. Mögulegt er að tala látinna muni hækka, þar sem nokkrir einstaklingar eru enn týndir og erfitt hefur reynst að bera kennsl á lík úr lestinni við Maelbeek stöðina.

Sjá einnig: Myndir frá árásunum í Brussel

Þeir þrír sem gerðu árásirnar á flugvellinum fóru þangað með leigubíl, en bílstjórinn gat bent lögreglunni á hvar hann tók þá upp í bíl sinn.

Frederic Van Leeuw segir að þar hafi lögreglan fundið fundið fartölvu Ibrahim el-Bakjraoui. Þar hafi hann skrifað að hann teldi lögregluna vera að leita að sér og að hann vildi ekki fara í fangelsi.

Árásirnar í Brussel tengjast árásunum í París í nóvember.Vísir/GraphicNews
Van Leeuw sagði tvo hafa verið handtekna vegna rannsóknarinnar, en að öðrum þeirra hefði verið sleppt.

Tengjast árásunum í París

Lögreglan leitar nú að Najim Laachraoui, en hann er talinn hafa verið þriðji árásarmaðurinn á flugvellinum. Það hefur ekki verið staðfest af lögreglu, en fjölmiðlar ganga út frá því að svo sé.

Laachraoui er einnig talinn hafa gert sprengjur fyrir árásarmennina í París. Undanfarna daga hefur hann verið á flótta undan lögreglu, eftir að gert var áhlaup á íbúð sem hann var í ásamt Salah Abdeslam, sem tók þátt í árásunum í París.

Samkvæmt AFP fréttaveitunni tilheyra látnir og særðir um 40 þjóðum. Þeir komi frá Norður og Suður Ameríku, Asíu, Afríku og Evrópu. Þá særðust fjórir starfsmenn framkvæmdatjórnar ESB.


Tengdar fréttir

Lýst er eftir fjórða árásarmanninum

Sjálfsvígsrásirnar í Brussel kostuðu að minnsta kosti 30 manns lífið. Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð. Tveir grunaðir vitorðsmenn voru handteknir og lýst er eftir þeim þriðja. Forsætisráðherra Belgíu hvetur fólk til að hald




Fleiri fréttir

Sjá meira


×