Enski boltinn

Fórnarlamb Johnson vildi vernda hann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Johnson með unnustu sinni, Stacey Flounders, á dögunum.
Johnson með unnustu sinni, Stacey Flounders, á dögunum. Vísir/Getty
Vitnisburður fimmtán ára stúlku sem var dregin á tálar af knattspyrnumanninum Adam Johnson var fluttur í réttarhöldunum gegn knattspyrnumanninum í Englandi í gær.

Johnson hefur gengist við því að hafa vingast við stúlkuna í þeim tilgangi að koma á kynferðislegu sambandi við hana sem og einni af þremur kærum um kynferðislegt athæfi með barni. Hann neitar sök í hinum tveimur kæruliðunum.

Stúlkan, sem er enn í skóla, lýsti því hvernig hún kynntist Johnson og hvernig samband þeirra þróaðist. Það byrjaði með því að hún sendi honum vinabeiðni á Facebook. Johnson samþykkti hana og hóf að spjalla við hana á netmiðlum.

Sjá einnig: Johnson var átrúnaðargoð stúlkunnar sem hann misnotaði

Þau hittust svo að Johnson gæti gefið henni tvær áritaðar Sunderland-treyjur en eftir það sendi hann stúlkunni skilaboð þar sem hann sagði að hún stæði honum í þakkarskuld fyrir treyjurnar.

Johnson og stúlkan, sem nýtur nafnleyndar vegna aldurs, hittust síðar og stunduðu að sögn stúlkunnar kynferðislegt athæfi í bifreið hans. Þau kysstust og það gekk svo langt að hann setti hönd hennar á kynfæri sín.

Sjá einnig: Sunderland rekur Johnson

„Hann setti hönd mína á buxurnar sínar og setti svo höndina mína þangað niður. Mér hefði þótt það vandræðalegt að draga höndina til baka þá,“ sagði hún. „Mér fannst ég knúin til að gera þetta út af því að hann dró niður buxurnar sínar.“

„Það er erfitt að muna hvernig þetta byrjaði. Ég hef bara reynt að gleyma þessu öllu saman.“

Johnson hefur verið fastamaður í liði Sunderland á núverandi leiktíð.Vísir/Getty
Stúlkan segir að þetta hafi staðið yfir í nokkrar sekúndur til að Johnson sagði að ef þetta myndi halda áfram þá yrði hann að stunda kynlíf með henni.

Spurð hvernig henni leið eftir á var svar hennar: „Ekki mjög vel. Eins og ... ég veit það ekki. Ég varð fyrir vonbrigðum með sjálfa mig.“

Sjá einnig: Johnson játar kynferðisbrot gegn barni

Hún lýsir því að hún hafi í fyrstu ekki viljað stíga fram og reynt að ljúga um atburðina til að vernda Johnson. Hún hafi ekki viljað koma honum í klandur og ekki viljað að skemma knattspyrnuferil hans.

„Á þeim tíma gerði ég mér ekki grein fyrir því að þetta var rangt og það sem gerðist var rangt.“

Johnson skoraði gegn Liverpool í upphafi mánaðarins en hér fagnar hann marki sínu gegn Newcastle í október.Vísir/Getty
Sögusagnir fóru af stað um stúlkuna og Johnson í skóla hennar og á endanum hafi hún ákveðið að segja foreldrum sínum frá þessu.

„Ég hafði ekki áhyggjur af sjálfri mér. Ég var að reyna að vernda hann svo hann myndi ekki missa allt saman. Ég vildi ekki að það yrði nokkuð gert í þessu, en mamma mín sagði að það sem hann gerði var rangt.“

Stúlkan sagði að Johnson vissi hversu gömul hún var, í hvaða skóla hún gekk, að hún væri ársmiðahafi hjá Sunderland og hvaða sæti hún var með á leikvangi félagsins.

Sjá einnig: Johnson getur spilað þrátt fyrir kæruna

Eftir áðurnefndan fund þeirra hélt Johnson, að sögn stúlkunnar, áfram að senda henni skilaboð og vildi hittast aftur strax næsta dag. Hún neitaði og stuttu síðar fóru sögusagnirnar af stað.

Johnson er gefið að sök að hafa vitað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að stúlkan hafði fyrst samband við hann að hún væri fimmtán ára gömul og að hann hefði leitað að upplýsingum á internetinu um „legal age of consent“ eða hvenær einstaklingur er lögráða og heimilt samkvæmt lögum að stunda kynlíf.

Réttarhöldin standa enn yfir en upplýsingar í þessari grein eru sóttar á vefútgáfu The Guardian.


Tengdar fréttir

Johnson ekki með Sunderland um helgina

Adam Johnson verður ekki með Sunderland þegar liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á laugardaginn.

Sunderland rekur Johnson

Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur rekið Adam Johnson en hann hefur játað á sig kynferðisbrot gegn barni.

Johnson játar kynferðisbrot gegn barni

Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, hefur játað fyrir rétti að hafa brotið kynferðislega gegn stúlku undir samræðisaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×