Formennirnir kynna stjórnarsáttmálann Sunna Valgerðardóttir skrifar 22. maí 2013 11:49 Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynna stjórnarsáttmálann. Mynd/ Egill.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins héldu stutt erindi fyrir fréttamenn á fundi í Héraðsskólanum á Laugarvatni áður en þeir undirrituðu stjórnarsáttmála ríkisstjórnar flokkanna beggja. Bjart var yfir mönnum, enda veðrið með besta móti. Sigmundur Davíð fór yfir sáttmálann í stórum dráttum þar sem hann lagði áherslu á landbúnað, heilbrigðismál, umhverfismál og svo stóra málið; skuldavanda heimilana. „Ég er ákaflega sáttur við þá niðurstöðu sem við náðum varðandi stöðu heimilana. Það var stóra málið í síðustu kosningum," sagði Sigmundur. „Þótt stjórnarsáttmáli sé yfirleitt almennt orðað skjal og ekki margar blaðsíður, sáum við ástæðu til að hafa ítarlegan kafla um skuldamálin. Við munum strax hefja vinnu við þetta, en það mun taka tíma að vinna frumvörp og klára hluti í tengslum við þau." Bjarni tók undir með Sigmundi og sagðist afar ánægður með þá lendingu sem formennirnir náðu á fundum sínum. „Ég er mjög ánægður með að flokkarnir tveir hafi náð saman, sem væri eðlilegt framhald í kjölfar kosninganna," sagði hann. „Við höfum sett réttu forgangsmálin á dagskrá, en við munum heldur ekki færast of mikið í fang. Það eru fjölmörg tækifæri í landinu, en ef ekki er rétta andrúmsloftið í samfélaginu munu okkur ekki auðnast að færast fram og við munum tapa samkeppnisstöðu landsins."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira