Íslenski boltinn

Formaður Þórs: Við erum ráðvillt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Árni Óðinsson, formaður Þórs á Akureyri, segir að ekkert hafi verið ákveðið um næstu skref eftir að KA ákvað að slíta samstarfi félaganna.

Síðan 2001 hafa félögin tvö teflt fram sameiginlegu liði í meistaraflokki og 2. flokki kvenna hjá Þór og KA. Ljóst er að samstarfið heldur ekki áfram eftir núverandi tímabil í Olísdeild kvenna en óvíst er hvort að Þór/KA spili í Pepsi-deild kvenna í sumar.

Þór sér um rekstur knattspyrnuliðs félaganna og er með keppnisrétt liðsins í Pepsi-deildina. Þór ákveður því næstu skref en fram hefur komið í yfirlýsingu frá KA að félagið er reiðubúið að styðja samstarfið áfram til haustsins.

Sjá einnig: KA sleit samstarfinu við Þór: Þetta var ekki létt ákvörðun

„Kvennaráð Þórs/KA fundar klukkan 18 í dag og svo fer ég á fund með þeim og stjórnarmönnum knattspyrnudeildar síðar í kvöld,“ sagði Árni í samtali við Vísi.

„Svo eigum við alveg eftir að taka handboltann fyrir. Við höfum ekki markað okkur neina stefnu í þessu og erum einfaldlega ráðvillt.“

Verið að kasta okkur út um bakdyrnar

Samningnum um samstarfið var sagt upp í haust og segir Árni ekkert óeðlilegt við það. „Það var með því markmiði að setjast niður og gera nýjan samning. Það voru uppi einhverjar hugmyndir um breytingar.“

„En það komu aldrei neinar hugmyndir frá KA og aldrei áttu sér stað formlegar viðræður. Svo koma þessar fréttir í gær.“

Hann segir að enginn ágreiningur hafi verið á milli félaganna sem útskýrir þetta. KA sé að marka nýja stefnu sem félaginu sé frjálst að gera.

„En það hefði verið betra að fá að vita þetta með fyrirvara, vinna úr málunum og senda út sameiginlega tilkynningu. Mér finnst að það sé verið að kasta okkur út um bakdyrnar. Það er mín upplifun.“

Óvissa um samningsmál

Hann segir með öllu óvíst hvað taki við, til dæmis í málefnum leikmanna og þjálfara.

„Við höfum ráðið þjálfara til næstu þriggja ára og gert leikmannasamninga sem ná ekki bara til haustsins heldur mun lengur. Þurfum við að nú að rifta þeim? Ég veit það ekki.“

Hann segir að flestir leikmenn séu með leikmannasamning við Þór, en þó einhverjir við KA. „Ég veit ekki hvernig KA getur uppfyllt þá samninga, enda ekki með lið í meistaraflokki. Ég veit ekki hvernig þessi mál verða leyst.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×