Innlent

Formaður styrkti bróður sinn

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Valdimar Össurarson framkvæmdastjóri Valorku
Valdimar Össurarson framkvæmdastjóri Valorku
Stjórnsýsla „Ég fór fram á lista yfir styrkveitingar Orkusjóðs og þá kom margt furðulegt í ljós, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ segir Valdimar Össurarson, framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Valorku sem nýlega var synjað um styrk úr Orkusjóði.

Sjóðurinn er í eigu ríkisins og sér ráðgjafarnefnd Orkusjóðs um að skila tillögum til iðnaðarráðherra um einstakar greiðslur úr sjóðnum. Tvær styrkveitingar fóru til verkefna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem námu tæpum fimm milljónum króna.

Að sögn Valdimars eru umræddar styrkveitingar ólögmætar, eins og að þeim var staðið. Árni Sigfússon, stjórnarformaður Orkusjóðs sem styrkinn veitti, og Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem styrkinn fékk, eru bræður.

Jakob Björnsson, framkvæmdastjóri Orkusjóðs, staðfestir að Árni hafi ekki vikið sæti þegar styrkveitingin var samþykkt í stjórn sjóðsins. „Þetta stangast á við stjórnsýslulög. Ég hef kært þetta til ráðuneytisins og krafðist endurupptöku styrkveitingarinnar,“ segir Valdimar. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verður erindinu svarað á næstunni.

Þá segir Valdimar ámælisvert að stofnunin geti yfirhöfuð sótt um styrki úr samkeppnissjóðum. Stofnuninni sé að lögum ætlað að vera frumkvöðlum til ráðgjafar og meðal annars veita þeim aðstoð við styrkumsóknir í samkeppnissjóði.

„Þarna vinnur stofnunin gegn þessu höfuðverkefni sínu með því að sækja sjálf um styrki í sömu sjóði og keppa þar með við skjólstæðinga sína. Valorka er til dæmis skjólstæðingur Nýsköpunarmiðstöðvarinnar,“ segir Valdimar. Hann segir þá samkeppni vera hinum almenna frumkvöðli í óhag þar sem Nýsköpunarmiðstöðin er ríkisstofnun með herskara sérfræðinga á sínum vegum og með sérhæft starfsfólk í styrkumsóknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×