Sport

Formaður SSÍ sér ekki að fjallað hafi verið á lítillækkandi hátt um afreksfólkið í sundi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hörður J. Oddfríðarson, formaður Sundsambands Íslands.
Hörður J. Oddfríðarson, formaður Sundsambands Íslands.
Hörður J. Oddfríðarson, formaður Sundsambands Íslands, segist hafa kafað ofan í skrif fjölmiðla af heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í sundi sem er nýlokið í Kanada. Eftir að hafa farið yfir allar greinar sem birst hafi í íslenskum fjölmiðlum af mótinu fái hann ekki séð að „nokkurs staðar sé skrifað á lítillækkandi eða niðrandi hátt um sundfólkið eða árangur þess, einungis teknar staðreyndir og notaður texti sem undirritaður sendi til þessara fjölmiðla.“

Aron Örn Stefánsson.mynd/sundsamband íslands
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Herði sem birt var á vefsíðu Sundsambands Íslands í dag. Tilefnið er pistill sem sundkappinn Aron Örn Stefánsson skrifaði eftir eina af fjölmörgum fréttum af gengi íslensku keppendanna í Kanada. Þar sagðist Aron Örn fagna fréttaskrifum af mótinu enda margra ára vinna að baki hjá þeim.

„Það sem okkur liggur á hjarta og höfum tekið eftir að mætta betur fara er sú staðreynd af greinaskrifin ykkar er hreint út sagt niðrandi og lítillækkandi. Í of mörgum tilfellum hafiði skrifað “…komst ekki áfram“. Það sem fyllti mælinn hjá okkur var sú fyrirsögn sem kom á síðunni ykkar í dag “Enginn Íslendinganna komst áfram”,“ skrifaði Aron og tengdi við frétt Vísis af genginu þann daginn.

Pistil Arons má sjá hér að neðan en honum hefur verið deilt mörg hundruð sinnum og á þriðja þúsund manns líkað við.

Formaður Sundsambandsins útskýrir í pistli sínum í dag að hann hafi verið í hlutverki fararstjóra og einnig í hlutverki miðlara til helstu fjölmiðla sem nýttu nýjustu upplýsingar sem bárust frá honum. 

„Efalaust hefði undirritaður mátt vera betur undirbúinn til þessarar þjónustu, bæði hvað varðar upplýsingar um sundfólkið og ekki síður hefði mátt setja fram skoðanir á árangri með skýrari hætti en gert var í tölvupóstum, Facebook-texta og fréttum á heimasíðu SSÍ. Myndir sem birtar voru á Facebook-síðu og heimasíðu og jafnframt sendar ofangreindum fjölmiðlum til birtingar voru teknar af undirrituðum og sundfólkinu sjálfu en úr þeim unnið af undirrituðum.“

Hörður segist ekki geta tekið undir að um lítillækkandi eða niðrandi skrif hafi verið að ræða. Einungis fjallað um staðreyndir og notaður texti sem hann sendi sjálfur.

„Það hefur ekki verið háttur SSÍ að fara með neikvæða umræðu á samfélagsmiðla eða annað. Frekar höfum við sest niður með viðkomandi og rætt mál til lausna. Það er jafnframt ljóst að gagnrýni Arons Arnar og sundfólksins á HM25 hefði í þessu tilfelli átt að beinast beint að þeim sem miðlaði upplýsingum til fjölmiðlanna, þ.e. undirritaðs, en ekki að fjölmiðlunum eða einstökum íþróttafréttamönnum.“

Að neðan má sjá fréttir Vísis af heimsmeistaramótinu í sundi í Kanada.


Tengdar fréttir

Enginn Íslendinganna komst áfram

Íslenska sundfólkið hefur lokið leik á fimmta keppnisdeginum á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada.

Stolt af íslenskum íþróttakonum í ár

Hrafnhildur Lúthersdóttir endaði magnað ár hjá sér með því að koma að átta Íslandsmetum á HM í 25 metra laug sem lauk í nótt.

Davíð Hildiberg og Kristinn í samliggjandi sætum á HM

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson og Kristinn Þórarinsson tóku báðir þátt í undanrásum í 100 metra baksundi á fyrsta degi á Heimsmeistaramótinu í 25 metra laug sem hófst í dag í Windsor í Kanada.

Bryndís bætti Íslandsmetið sitt

Bryndís Rún Hansen, úr Óðni, setti nýtt Íslandsmet í 100 metra flugsundi á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag.

Bryndís komst ekki í úrslit

Bryndís Rún Hansen komst ekki í úrslit í 50 metra flugsundi á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í kvöld.

Eygló Ósk komst ekki í undanúrslit

Íþróttamaður ársins, Eygló Ósk Gústafsdóttir, komst ekki í undanúrslit í 100 metra baksundi í dag á Heimsmeistaramótinu í 25 metra laug sem fram fer þessa dagana í Windsor í Kanada.

Annað Íslandsmet hjá Hrafnhildi

Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti Íslandsmetið í 50 metra bringusundi öðru sinni á HM í 25 metra laug í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×