Innlent

Formaður Sjómannasambandsins kallar eftir rannsókn á sleppibúnaði björgunarbáta

Gissur Sigurðsson skrifar
Mennirnir sem komust af þegar Jón Hákon BA sökk voru fluttir til Bolungarvíkur.
Mennirnir sem komust af þegar Jón Hákon BA sökk voru fluttir til Bolungarvíkur. Vísir/Hafþór Gunnarsson
Formaður Sjómannasambands Íslands segir brýnt að endurskoða allan búnað björgunarbáta í flotanum hið fyrsta svo að þeir veiti ekki falskt öryggi. Sleppigálgar fyrir björgunarbáta sem eru skylda hér eru hvergi annars staðar notaðir í heiminum.

Myndir úr neðansjávartökuvél sýna að sjálfvirkur búnaður virkaði ekki í báðum björgunarbátum Jóns Hákons, BA sem sökk út af Aðalvík nýverið. Einn skipverjanna fórst en þremur tókst að bjarga.

Sjá einnig:Sleppibúnaður veitir falskt öryggi

Sjómannasambandið hefur áhyggjur af þessu og reyndar fleiri tilvikum, þar sem sjálfvirkur búnaður hefur ekki virkað, að sögn Valmundar Valmundarsonar, formanns sambandsins.

Valmundur Valmundarson.Vísir/Ernir
Gálginn skaust ekki út

„Við gerum þá skýlausu kröfu að þetta verði rannsakað ofan í kjölinn og skýringar fengnar af hverju búnaðurinn virkaði ekki,“ segir Valmundur.

„Ef ég skil þetta rétt var svokallaður Hammer búnaður á öðrum bátnum sem á að skera böndin við ákveðinn þrýsting,“ segir Valmundur. Mögulega hafi haft áhrif að báturinn marraði hálfur í kafi sem hafi haft áhrif á þrýstinginn.

„En það var líka gálgi sem á að skjótast út ef búnaðurinn blotnar. Það gerðist ekki heldur.“

Falskt öryggi 

Valmundur segir mörg ár síðan búnaðurinn kom fram og kannski þurfi að leggjast í ákveðna skoðun á honum.

„Við höfum kannski sofnað á verðinum við að viðhalda rannsóknum á þessum búnaði og þróa hann meira.“

Aðspurður hvers vegna þessi búnaður sé notaður hér á landi, sem er einsdæmi, segir Valmundur ástæðuna einfalda: „Við höfum talið hann vera bestan. Það fer ekki á milli mála.“

Þá segir Valmundur vel meðvitaður um dæmi þess að gormurinn gefi sig.

„Auðvitað verðum við að komast til botns í þessu. Ef þetta er búnaður sem virkar ekki er eins gott að sleppa honum. Hann er þá falskt öryggi,“ segir Valmundur. Hann minnir sjómenn í leiðinni á að hlusta á neyðarrásina 16 en vanhöld voru líka á því þegar Jón Hákon sökk.


Tengdar fréttir

Myndavél mun skoða flakið

Rannsóknarstjóri rannsóknarnefndar samgönguslysa segir vinnslu málsins á algeru frumstigi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×