Innlent

Formaður SHÍ um nýtt LÍN-frumvarp: Lítur vel út fyrir flesta nemendur Háskóla Íslands

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fyrirhugaðar eru breytingar á námslánakerfi LÍN.
Fyrirhugaðar eru breytingar á námslánakerfi LÍN. Vísir/Valli
Kristófer Már Maronsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að við fyrstu sýn líti fyrirhugaðar breytingar á námslánakerfi LÍN sem kynntar voru í dag vel út. Að öllum líkindum muni þær koma sér vel fyrir flesta nemendur Háskóla Íslands.

„Við fyrstu sýn lítur þetta betur út en núverandi kerfi,“ segir Kristófer Már en Stúdentaráð fékk kynningu á fyrirhuguðum breytingum í gær. „Ég held að flestir séu sammála um það að fyrir flesta nemendur Háskóla Íslands líti þetta mjög vel út. Fyrir nemendur HÍ er að öllum líkindum betra að fá svona beina styrki þar sem þeir fá að öllum líkindum lægstu lánin.“

Samkvæmt frumvarpi Illuga Gunnarssonar, menntamálaráðherra, munu námsmenn í fullu námi geta fengið 65 þúsund krónur á mánuði í beinan styrk í alls 45 mánuði. Geta námsmenn ákveðið að taka eingöngu styrk, eða styrk og lán, eða jafnvel lán að hluta.

Sjá einnig: Umbylting í námslánakerfinu: Nemendur fá þrjár milljónir í styrk

„Það er frábært að hægt sé að fá námsstyrki án þess að taka lán sem er ekki inn í núverandi kerfi,“ segir Kristófer sem bendir á að líklegt sé að breytingarnar verði til þess að þörf nemenda til þess að vinna með háskólanámi minnki.

„Ég tel að þetta hafi þau áhrif að þau sem þurfa að vinna með námi geti nú unnið minna og tekið styrkinn,“ segir Kristófer. „Einnig ættu þau sem ekki þurfa mikil lán núna að geta látið styrkinn duga.“

Kristófer bendir þó að Stúdentaráð hafi ekki fengið frumvarpið um breytingarnar í hendurnar, aðeins kynninguna frá því í gær. Stúdentaráð muni fara betur ofan í saumana á því til þess að sjá hvort einhverjir leyndir gallar leynist í því.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×