Innlent

Formaður SFS segir verkfall sjómanna „gríðarlega mikil vonbrigði“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jens Garðar Helgason, formaður SFS.
Jens Garðar Helgason, formaður SFS. vísir/gva
Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir það gríðarlega mikil vonbrigði að sjómenn séu á leið í verkfall núna klukkan 23 í kvöld. Viðræður SFS við Sjómannasamband Íslands sigldu í strand á tíunda tímanum í kvöld en þær stranda á mönnunarmálum og þá sérstaklega á mönnunarmálum á uppsjávarskipum.

„Þetta eru gríðarlega mikil vonbrigði því við vorum búnir að ná mjög miklum og góðum árangri í mörgum mjög stórum málum, til að mynda varðandi fiskverðið, um nýsmíðaákvæði og færslu á orlofsrétti svo eitthvað sé nefnt. Þetta kemur mér virkilega á óvart þar sem ég hélt að þessi mál væru komin í ákveðinn farveg en þetta er síðan dregið upp úr hatti hérna seinni partinn í dag,“ segir Jens í samtali við Vísi.

Jens segir að SFS sé ekki búið að reikna út hversu mikið efnahagslegt tjón verkfallið getur valdið en ljóst er að það mun standa í að minnsta kosti viku þar sem skip eru á leið í land alla leið úr Barentshafi, en siglingin þaðan og hingað tekur um viku.

Því á hann von á að Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari, muni taka stöðuna á mönnum undir lok næstu viku en hvort hún boði fund veit hann ekki um.

Þó að erfitt sé að segja til um efnahagslegt tjón þá er það svo að bæði nóvember og desember eru mjög stórir mánuðir fyrir ferska fiskinn að sögn Jens.

„Síðan gerist það eftir áramótin að Norðmenn koma inn á markaðinn, verðin lækka og þá hægist um á markaðnum. Þannig að fyrir sjómenn á bolfiskskipum þá hlýtur þetta að vera mikið högg því þetta eru svona með bestu mánuðum á árinu.“

Samninganefnin situr enn á fundi í Karphúsinu með vélstjórum en Jens segir ekki hægt að segja til um það hvenær eða hvernig þeim viðræðum ljúki.

„Ætli maður hafi ekki lært það á þessum degi í dag að segja hvorki af né á.“ 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×