Innlent

Formaður Samfylkingarinnar segist aldrei geta afsakað ljót orð ritarans

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Egill Einarsson, Oddný Harðardóttir og Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson.
Egill Einarsson, Oddný Harðardóttir og Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson.
Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingarinnar hefur ekki rætt við Óskar Stein Jónínuson Ómarsson ritara flokksins vegna ummæla sem hann lét falla á Twitter í gær um Egil Einarsson sem er betur þekktur sem Gillz. Hún kveðst þó munu ræða við Óskar um málið og segir það aldrei afsakanlegt þegar fólk noti ljót orð.

Það vakti mikla athygli í gær þegar Óskar sagði Agli að fokka sér á samfélagsmiðlinum Twitter í kjölfar þess að Egill gagnrýndi tíst Óskars þar sem hann vakti athygli á þeirri umræðu sem átti sér stað á Alþingi á meðan Unnur Brá Konráðsdóttir gaf barni sínu brjóst.

Vísir greindi frá málinu og ræddi svo við Óskar sem baðst afsökunar á orðum sínum en sagði jafnframt að honum hefði blöskrað gagnrýni Egils.

Oddný var gestur í Kosningaspjalli Vísis í dag og var spurð út í þetta mál.

„Nú verð ég að viðurkenna það að ég hef ekki lesið þetta en ég heyrði það samt að hann hefði notað ljót orð og ég get aldrei afsakað neitt slíkt, en mér skildist líka að hann hefði verið að bregðast við einhverju sem fékk þessar tilfinningar til að ólga í honum og hann lét þessi orð falla en ég get aldrei afsakað slík orð,“ sagði Oddný.

Aðspurð hvort hún muni ræða málið við Óskar sagði hún að þau myndu ræða saman.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×