Innlent

Formaður Neytendasamtakanna sakar stjórnvöld um ósvífni

Hemir Már Pétursson skrifar
Formaður Neytendasamtakanna segir styrkingu gengis íslensku krónunnar ekki hafa skilað sér að fullu í lægra vöruverði til neytenda á undanförnum misserum. Þá beiti ríkið sér með ósvífni og ófyrirleitni fyrir hækkun matvælaverðs á Íslandi.

Ólafur Arnarson formaður Neytendasamtakanna og Margrét Sanders formaður Samtaka verslunar og þjónustu voru meðal gesta í Víglínunni á Stöð 2 og Vísi í dag. Ólafur sagði sterkar vísbendingar um að mikil styrking krónunnar á þessu ári hefði ekki skilað sér til neytenda, sérstaklega í matvöruverslun. Það sé hins vegar ekki alltaf við verslunina að sakast heldur ríkið sem haldi uppi haftakerfi varðandi innflutning á matvælum.

„Þetta er til að halda uppi verði á íslenskum matvælum. Fyrst og fremst landbúnaðarafurðum. Við teljum að þar sé hagsmunum bænda illa þjónað, vegna þess að þetta virðist ekki skila sér til þeirra. Þetta er klárlega á kostnað neytenda og við sjáum að svo er hin vanginn á neytendum tekinn eins og í fjáraukalögunum núna. Nú á að verja eitt hundrað milljónum af skattfé til að markaðssetja íslenskt lambakjöt í útlöndum. Og það segir í frumvarpinu; til að koma í veg fyrir verðlækkun til neytenda á Íslandi. Þetta er náttúrlega þvílík ósvífni og ófyrirleitni í garð íslenskra neytenda að maður er nánast orðlaus frammi fyrir svona viðmóti,“ segir Ólafur Arnarson.

Horfa má á Víglínuna í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×