Erlent

Formaður íslensku samninganefndarinnar í París: „Ekki nokkur vafi á að hér er að nást sögulegt samkomulag“

Atli Ísleifsson skrifar
Hugi Ólafsson, formaður íslensku samninganefndarinnar í París.
Hugi Ólafsson, formaður íslensku samninganefndarinnar í París. VÍSIR/UNFCCC
„Það er smá taugaveiklun svona í lokin. Þetta er flókinn samningur og miklir hagsmunir í húfi. Ég tel hins vegar ekki nokkur vafi á að hér er að nást sögulegt samkomulag,“ segir Hugi Ólafsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, um lokadrög loftslagssamningsins sem kynnt voru í París fyrr í dag.

Hugi segir þetta vera lokatexta sem hafi verið lagður fram. „Hann orðinn alveg hreinn, það eru engir hornklofar eða ólíkir kostir, heldur eru komin drög að hreinum samningi.

Hann segir að nú séu fulltrúar allra ríkja og ríkjahópa að fara yfir textann og athuga hvort að hann sé í lagi, hvort gera eigi einhverjar breytingar á síðustu stundu. Hann segir mikinn þrýsting á að textinn haldist í stórum dráttum óbreyttur. Búið er að boða til fundar klukkan hálf fimm að íslenskum tíma.

Tekur á öllum helstu þáttum loftslagsmála

Hugi segir samninginn taka á öllum helstu þáttum loftslagsmála, ekki síst aðgerðum til að draga úr losun og auka bindingu. „Einnig er tekið á því að draga úr afleiðingum loftslagsmála, að reyna að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar. Það er líka tekið á aðlögun að loftslagsbreytingum og fjármögnun. Þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar þar sem öll ríki eru með í aðgerðum og markar að því leyti tímamót.“

Hugi segir að 100 milljarðar Bandaríkjadala verði lagðar í framkvæmd samningsins á ári fram til ársins 2020. „Það verður svo endurskoðað, með möguleika á aukningu. Þetta er til þess að aðstoða þróunarríkin, bæði til að nýta sér loftslagsvæna tækni í sinni þróun, í stað kol og olíu, og eins til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga, sérstaklega viðkvæmustu ríkin, svo sem Kyrrahafseyjar og Afríkuríki sem fást við þurrka.“

Geysilega góður andi

Í samningnum er sett fram það markmið að halda hækkun hitastigs fram til ársins 2100 undir tvær gráður, en reyna jafnframt að fara niður fyrir 1,5 gráður. „Settur er ákveðinn rammi utan um markmið ríkja sem verða reglulega uppfærð. Það var eitt af meginaatriðunum, sem þýðir að það verður sterkt aðhald.“

Hugi segist vera mjög bjartsýnn og að það hafi verið geysilega góður andi á ráðstefnunni í París. „Þegar samningurinn var kynntur í hádeginu sögðu Frakklandsforseti og framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna að við gætum valið gífurleg vonbrigði eða að ná saman um sögulegan samning. Tækifæri sem þetta gæfist ekki aftur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×