Innlent

Formaður framkvæmdaráðs Pírata ekki í Panama-skjölunum og segir því af sér

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Erna Ýr Öldudóttir nú fyrrum formaður framkvæmdaráðs Pírata.
Erna Ýr Öldudóttir nú fyrrum formaður framkvæmdaráðs Pírata. Vísir/Stöð2
„Ég hef sagt af mér trúnaðarstörfum og þar með formennsku í framkvæmdaráði Pírata,“ segir Erna Ýr Öldudóttir. Ástæðuna segir hún vera þá að hvorki nafn hennar né félag í hennar eigu hafi komið fram í Panama-skjölunum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hún sendi framkvæmdaráði flokksins í gær.

„Ég dreg mig í hlé til að koma í veg fyrir að rýrð verði kastað á Pírata og þau góðu störf sem þeir hafa unnið í tíð þessarar ríkisstjórnar, þar sem mér hefur ekki tekist að skipa mér á bekk með alvöru ræningjum, hverjir ránsfengi sína fela á sjóræningjaeyjum suður í höfum.“

Þá segir Erna aðrar ástæður vera fyrir hendi en sú sem fyrrgreind er og varða þær málefnalegan ágreining og þá „staðreynd að einstaka meðlimir framkvæmdaráðs hafa ekki sýnt þá samstöðu sem þarf til að takast á við mikilvæg verkefni eins og til dæmis tímanlega ráðningu framkvæmdastjóra í afar ört stækkandi flokki með óteljandi áskoranir framundan.“

Tilkynningu Ernu má sjá í heild sinni hér að neðan.

Fimmtudagur, 28. apríl 2016

Afhent á formlegum fundi framkvæmdaráðs Pírata

Vegna þess að nafn mitt eða félaga í minni eigu hefur hvergi komið fram í hinum svokölluðu “Panamaskjölum”, hef ég ákveðið að segja mig frá trúnaðarstörfum fyrir Pírata og þar með formennsku í framkvæmdaráði flokksins.

Ég dreg mig í hlé til að koma í veg fyrir að rýrð verði kastað á Pírata og þau góðu störf sem þeir hafa unnið í tíð þessarar ríkisstjórnar, þar sem mér hefur ekki tekist að skipa mér á bekk með alvöru ræningjum, hverjir ránsfengi sína fela á sjóræningjaeyjum suður í höfum.

Aðrar mikilvægar ástæður eru málefnalegur ágreiningur og sú staðreynd að einstaka meðlimir framkvæmdaráðs hafa ekki sýnt þá samstöðu sem þarf til að takast á við mikilvæg verkefni eins og t.d. tímanlega ráðningu framkvæmdastjóra í afar ört stækkandi flokki með óteljandi áskoranir framundan. Því miður kemur fyrirséð annríki nú í veg fyrir að ég geti sinnt hlutverki mínu áfram af þeim krafti og þeirri alúð sem þarf til að ljúka þeim verkefnum sem liggja fyrir, m.a. vegna þess að framkvæmdastjóri hefur enn ekki verið ráðinn.

Við þessi tímamót vil ég nota tækifærið og þakka fyrir að mestu gott og ánægjulegt samstarf þann tíma sem ég hef gegnt trúnaðarstörfum í sjálfboðavinnu fyrir flokkinn.

Erna Ýr Öldudóttir


Tengdar fréttir

Pírata skortir fólk en ekki málefni

Píratar reyna nú að bregðast við margfaldri fylgisaukningu flokksins með því að endurmóta stefnumálin. Þeir glíma hinsvegar við þann vanda að fleira fólk vantar til starfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×