Innlent

Foreldrar ósáttir við lokun kristilegs hverfisleikskóla á Akureyri

Sveinn Arnarsson skrifar
Fólk úr öðrum hverfum Akureyrar sækir í Hlíðaból vegna kristilegs starfs leikskólans.
Fólk úr öðrum hverfum Akureyrar sækir í Hlíðaból vegna kristilegs starfs leikskólans. vísir/Pjetur
Foreldrar barna á leikskólanum Hlíðabóli á Akureyri eru ósáttir við þá ákvörðun bæjaryfirvalda að loka leikskólanum sumarið 2017. Vilja þeir halda í hverfisleikskólann sinn. Leikskólinn er rekinn af Hvítasunnusöfnuðinum á Akureyri.

Foreldrar efndu til fundar með yfirmönnum skóladeildar í kirkju Hvítasunnusafnaðarins, sem er í sömu byggingu og leikskólinn, síðastliðinn fimmtudag og var nokkur hiti í fólki. Skorað var á bæjaryfirvöld að endurskoða ákvörðun sína um að loka eina leikskólanum í bænum sem lætur börnin fara með bænir og er með kristilegt starf innan skólans. Nefndi eitt foreldri á fundinum að nú væri verið að taka af þeim eina kristilega skólann og senda börnin í aðra skóla þar sem væri kennt jóga sem væri hindúismi og andstætt kristinni trú.

Logi Einarsson, formaður skólanefndar Akureyrar
„Leikskólinn er okkur mjög kær og erum við ánægð með þær áherslur sem eru áberandi á Hlíðabóli, svo sem tjáningu, skapandi starf ásamt kærleika og umburðarlyndi fyrir náunganum,“ segir í bréfi foreldra til Akureyrarkaupstaðar vegna lokunarinnar.

Alls eru 47 börn í leikskólanum og samkvæmt Akureyrarkaupstað myndu sparast um 70 milljónir króna við að loka þessum leikskóla. Nú gæfist mikilvægur tími til að finna þeim börnum sem væru á Hlíðabóli stað á öðrum leikskólum.

Á vef Hlíðabóls segir að kristilegt starf sé rauður þráður í starfi leikskólans. „Við þökkum Guði fyrir matinn, áður en við borðum, og biðjum hann um að varðveita og blessa foreldra okkar og aðra ástvini. Við syngjum sunnudagaskólasöngva í bland við aðra söngva og skoðum sögur úr Biblíunni ásamt öðrum sögum sem okkur finnst skemmtilegar. Einu sinni í viku förum við inn í kirkju þar sem við syngjum saman, heyrum um Jesú og aðrar trúarhetjur,“ segir í fræðslu um skólann.

Hvítasunnukirkjan hefur rekið leikskóla síðan 1988. Safnaðarhirðir kirkjunnar er Snorri Óskarsson, sem var sagt upp með ólögmætum hætti hjá Akureyrarbæ 2012.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. apríl. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×