Innlent

Foreldrar hvattir til að sækja börn sín eftir skóla vegna veðurs

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bæði hvasst og blautt er á höfuðborgarsvæðinu.
Bæði hvasst og blautt er á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetja til þess að foreldrar eða forráðamenn sækji börn í lok skóladags eða frístundarstarfs vegna versnandi veðurs.

Í tilkynningu frá slökkviliðinu segir að átt sé við börn 12 ára og yngri og að börnin séu óhlult í skóla og frístundastarfi þar til þau verða sótt.

Veðurstofa Íslands hefur varað við suðaustan og sunna stormi eða roki á vestanverðu landinu og hálendinu í dag. Sérstaklega er búist verið hvössum vindstrengjum víða við fjöll, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi.

Þetta veður er til komið vegna djúprar lægðar suðvestur af landinu sem stjórnar veðrinu yfir Íslandi í dag. Veðrið mun ná hámarki í kvöld og mun draga smám saman úr vindi á morgun.


Tengdar fréttir

Varað við stormi í dag

Veðurstofan varar við suðaustan og sunnan stormi eða roki um landið vestanvert og á hálendinu í dag.

Innanlandsflug liggur niðri

Allar ferðir Flugfélags Íslands eru nú á bið vegna veðurs og þá hefur flugfélagið Ernir aflýst öllum ferðum sínum í dag.

Stormurinn á gagnvirku korti

Veðurstofan varar við suðaustan og sunnan stormi eða roki um landið vestanvert og á hálendinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×